Búið að banna það sem var ráðandi í bönkum fyrir hrun

For­stjóri FME segir að það sé búið að gera mjög mik­il­vægar breyt­ingar á lagaum­hverfi banka frá því sem var fyrir hrun. Bónusar eru tak­mark­aðir, eig­in­fjár­kröfur mun hærri, bannað að lána til stjórn­enda eða eig­enda og ekki hægt að taka veð í eigin bréfum.

Unnur Gunn­ars­dóttir, for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins segir að Ísland sé vel í stakk búið til að takast á við aukið frjáls­ræði á fjár­mála­mark­aði, sem felur meðal ann­ars í sér að stærri hluti banka verði í einka­eigu.

„Það verður að segj­ast eins og er að þessi ára­tugur sem við höfum verið í eftir áfallið hefur auð­vitað verið óvenju­legur. Það er ekki kannski eðli­legt ástand eða fyr­ir­komu­lag að svona stór hluti af fjár­mála­kerf­inu sé í eigu rík­is­ins. Þannig að þetta er heil­brigð og eðli­leg þróun að við séum farin að sjá þessar hreyf­ingar og að það sé áhugi á eign­ar­haldi í íslenskum fjár­mála­fyr­ir­tækjum.“

Þetta segir hún í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem er á dag­skrá klukkan 21:00 í kvöld.

Hægt er að sjá stiklu úr þætti kvölds­ins hér að neðan:

Unnur segir þar að búið sé að breyta gíf­ur­lega miklu í laga- og reglu­verki fjár­mála­fyr­ir­tækja frá því sem var fyrir hrun. Allur heim­ur­inn hafi verið í mjög hraðri lær­dóm­skúrfu til að fyr­ir­byggja að hlutir eins og síð­asta stóra fjár­málakreppa geti gerst aftur. Þá sé oft gagn­rýnt að allur fókus sé á að fyr­ir­byggja áfall eins og varð síð­ast, þegar næsta áfall geti verið allt ann­ars eðlis.

Hún nefnir nokkur atriði sem voru ráð­andi í því að hrunið varð jafn afdrifa­ríkt haustið 2008, sem nú er búið að koma í veg fyrir að geti end­ur­tekið sig með breyt­ingum á lögum og reglum. „Það eru komnar þessar miklu eig­in­fjár­kröfur sem að Fjár­mála­eft­ir­litið fylgir eftir og hefur vald­heim­ildir til þess að gera kröfu um. Fyrir hrun var eig­in­fjár­krafan átta pró­sent. Núna er hún í kringum, og jafn­vel yfir 20 pró­sent, og af meiri gæðum. Það eru tak­mark­anir varð­andi til dæmis tengda aðila. Það var erfitt að sanna að það væri verið að taka mikla áhættu með tengda aðila. Núna er búið að snúa sönn­un­ar­byrð­inni við í íslenskum völdum.“

[adspot]Þá sé líka búið að taka á hinum klass­íska freistni­vanda sem getur skap­ast innan fjár­mála­kerf­is­ins. Á honum sé búið að gera mjög mik­il­vægar breyt­ingar. „Það er þrennt sem mig langar að nefna með það. Það eru þessar alræmdu kaupauka­reglur. Það er ekki vin­sælt að það megi ekki greiða yfir 25 pró­sent af árs­launum í bónusa í fjár­mála­kerf­inu. Það eru mjög miklar tak­mark­anir hvað má lána eig­endum, stjórn­endum og stjórn­ar­mönnum innan úr sínu fyr­ir­tæki. Í þriðja lagi, það sem var mikið vanda­mál fyrir hrun að það var verið að lána til dæmis til hluta­bréfa­kaupa í bank­anum sjálfum með veði í hluta­bréfum í bank­anum sjálfum. Þetta er alveg harð­bannað núna og fram­fylgjum þessu alveg og fylgj­umst með. Þetta eru mjög mik­il­vægar breyt­ingar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

FME

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár