Telja frumvarp hamla upplýsingagjöf til almennings

Frétta­stofa Sýnar og Blaða­manna­fé­lag Íslands gagn­rýna frum­varp dóms­mála­ráð­herra um breyt­ingar á lögum um með­ferð einka­mála. Frum­varpið segja þau ganga gegn þeirri meg­in­reglu að rétt­ar­höld séu opin.

Blaða­manna­fé­lagið og frétta­stofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar sem er hluti af Sýn hf., gera alvar­legar athuga­semdir við til­lögur dóms­mála­ráð­herra á lögum um einka­mál. Samkvæmt frum­varp­inu yrði sam­tíma­end­ur­sögn af dóms­málum óheimil og ein­ungis dóm­stólum yrði heim­ilt að taka upp hljóð- eða myndefni af þing­haldi. Telja frétta­stofan og Blaða­manna­fé­lagið til­lög­urnar ganga gegn lýð­ræð­is­legum starfs­háttum dóm­stóla og regl­unni um opin rétt­ar­höld. Þórir Guð­munds­son, rit­stjóri frétta­stof­unnar, segir í umsögn­inni að frum­varpið hamli upp­lýs­inga­gjöf til almenn­ings og muni rýra traust almenn­ings á dóm­stóla.

Opin réttarhöld meginregla réttarfars

Í umsögn frétta­stofu Vísis, Stöðvar 2 og Bylgj­unnar segir að reglan um opin rétt­ar­höld sé ein af meg­in­reglum rétt­ar­fars í lýð­ræð­is­ríkjum. Þar kemur fram að eftir athuga­semd Lög­manna­fé­lags Íslands við fyrri útgáfu frum­varps­ins, um að það gengi gegn þeirri meg­in­reglu að rétt­ar­höld skuli vera opin hafi bannið verið tak­markað við skýrslu­tökur. Frétta­stofan telur það að tak­marka bann við sam­tíma­end­ur­sögn við skýrslu­tökur gangi enn gegn þeirri meg­in­reglu að rétt­ar­höld skulu opin. Í umsögn­inni kemur fram að nær­tækara væri að opna dóm­stóla frekar fyrir almenn­ingi og varað er við þeirri við­leitni að loka aðgengi að þeim.

Blaða­manna­fé­lag Íslands segir í athuga­semdum sínum að þæg­ind­ara­mmi lög­manna, dóm­ara og sak­born­inga eigi ekki að ráða för við breyt­ingar á við þær sem boð­aðar eru í frum­varp­inu. Þá telur félagið að nauð­syn fyrir breyt­ing­unum hafi ekki verið rök­studd með nægj­an­legum hætti. Íslenskt sam­fé­lag þurfi að styrkja fjöl­miðla við að opna umræðu um mik­il­væg mál og dóms­mál megi ekki vera þar und­an­skilin og frum­varpið komi til með að tak­marka upp­lýs­inga­gjöf til almenn­ings. Dómari hafi fullt for­ræði í dóm­sal og geti lokað rétt­ar­höldum telji hann hættu vera á því að rétt­ar­spjöll geti orðið.

Upptökur hafi áhrif á starfsfólk

Í gild­andi lögum kemur fram að vitni skuli yfir­heyrt án þess að önnur vitni séu við­stödd og er ástæða fyrir banni af sam­tíma­end­ur­sögn sögð vera til að koma í veg fyrir að vitni geti haft áhrif á vitn­is­burð ann­arra. Samkvæmt grein­ar­gerð með frum­varp­inu eru engar breyt­ingar lagðar til á heim­ildum um birt­ingu end­ur­rita eða dóm­skjala sem hafa að geyma sömu upp­lýs­ingar og eru í vitn­is­burðum.

Í grein­ar­gerð­inni kemur jafn­framt fram að sam­kvæmt gild­andi lögum geti vitni verið í sjálfs­vald sett hvort það birti hljóð- eða myndupp­töku af vitn­is­burði sem það hefur veitt fyrir dómi. Bent er á að vitn­is­burður sé sjaldn­ast einka­mál þess sem gefur skýrslu og því sé nauð­syn­legt að koma í veg fyrir að vitni geti birt upp­tökur af vitn­is­burði sínum.

Þá geti slíkar upp­tökur einnig haft þau áhrif að starfs­fólk hagi störfum sínum með öðrum hætti en það myndi ann­ars gera, ef það teldi sig eiga á hættu að mynd­band af því gæti birst á net­inu. Því sé nauð­syn­legt að banna öðrum en dóm­stólum að taka upp efni við þing­hald. Í grein­ar­gerð­inni er einnig sagt að nauð­syn­legt sé að víkka bannið vegna til­komu nýrrar fjar­skipta­tækni sem geri það kleyft að miðla bæði hljóð- og myndefni til stærri eða smærri hópa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár