Norskt vindorkufyrirtæki vill reisa vindmyllugarð á Íslandi

Norska vind­orku­fyr­ir­tækið Zephyr hefur stofnað dótt­ur­fyr­ir­tæki á Íslandi, Zephyr Iceland. Markmið fyr­ir­tæk­is­ins er að reisa vind­myllur og vind­myllu­garða hér á landi.

Norska vind­orku­fyr­ir­tækið Zephyr hefur stofnað dóttur­fyr­ir­tæki á Íslandi, Zephyr Iceland. Fyr­ir­tækið hyggst á næst­unni verja veru­legum fjár­munum til rann­sókna á vind­að­stæðum á Íslandi. Í frétta­til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu segir að mark­miðið sé að reisa hér á landi vind­myllur og vind­myllu­garða og bjóða umhverf­is­væna raf­orku á „hag­kvæmu og sam­keppn­is­hæfu verði.“ 

Hafa fjárfest fyrir rúma 35 milljarða í Noregi

Fyr­ir­tækið Zephyr er í eigu þriggja norskra vatns­afls­fyr­ir­tækja, Glitre Energi, Vardar og Østfold Energi. Þessi þrjú fyr­ir­tæki eru öll í eigu norskra sveit­arfélaga og fylkja. Fram­kvæmda­stjóri Zephyr á Íslandi er Ketill Sigurjónsson, sem jafn­framt er hlut­hafi í fyr­ir­tæk­inu.

Í til­kynn­ing­unni segir að móð­ur­fé­lag Zephyr hafi fjár­fest fyrir meira en 35 millj­arða íslenskra króna í vindafli í Noregi og hefur fyr­ir­tækið þegar reist meira en 300 MW af vindafli þar. Fyr­ir­tækið er nú að reisa þar nýjan 200 MW vind­myllu­garð og verður því senn með um 500 MW af vindafli í rekstri. Það jafn­gildir raf­orku­notkun um 75 þúsund norskra heim­ila.[adspot]

Vísbendingar um að íslensk vindorka geti keppt við vatnsafl og jarðvarma

Fyr­ir­tækið seg­ist hafa kannað íslenska raf­orku­mark­að­inn ítar­lega, ásamt við­eig­andi löggjöf og stefnu stjórnvalda. Morten de la Forest, stjórn­ar­for­maður Zepher á Íslandi segir að fyr­ir­tækið sjái áhuga­verð tæki­færi til nýtingar vind­orku á Íslandi og að sterkar vísbend­ingar séu um að íslensk vind­orka verði sam­keppn­is­hæf við bæði vatns­afl og jarð­varma.

„Ísland býr yfir geysi­lega góðum vind­að­stæðum og jafn­vel enn betri en eru í Noregi. Ég er afar ánægður með þá ákvörðun stjórnar Zephyr að Ísland verði fyrsti mark­aður okkar utan Noregs. Vind­ur­inn á Íslandi, ásamt sveigj­an­leik­anum sem íslenska vatns­afls­kerfið býr yfir, skapar Íslandi óvenju gott tæki­færi til að nýta vind­orku með ennþá hag­kvæm­ari hætti en í flestum öðrum löndum,“ segir Olav Rommet­veit, for­stjóri norska Zephyr og stjórnar­for­maður Zephyr á Íslandi í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár