Besta vörnin gegn falsfréttum að þjálfa gagnrýna hugsun

Formaður starfs­hóps um fjórðu iðn­bylt­ing­una segir nauð­syn­legt að huga að sjálf­ræði borg­ar­anna sam­hliða tækni­breyt­ingum. Gagn­rýnin hugsun verði sífellt mik­il­væg­ari færni, huga þurfi að per­sónu­vernd og jöfn­uði þegar tæknin leiðir af sér mikla hag­ræð­ingu.

Hvernig tök­umst við á við fals­fréttir sam­fé­lags­miðla? Við getum auð­vitað sett alls­konar reglur. En besta vörnin er auð­vitað sú að fólk sé þjálfað í gagn­rýnni hugsun. Að það séu kennt ákveðin vinnu­brögð við það að meta upp­lýs­ingar.“

Þetta sagði Dr. Huginn Freyr Þor­steins­son, sér­fræð­ingur hjá Aton og for­maður starfs­hóps for­sæt­is­ráð­herra sem vann skýrslu um Ísland og fjórðu iðn­bylt­ing­una, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans. Viðtalið birt­ist í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni.

Hægt er að sjá stiklu úr því hér að neðan.

Huginn segir það mjög mik­il­vægt að huga að stöðu borg­ar­anna gagn­vart tækn­inni. Það sé til að mynda hægt að gera með því að breyta áherslum í mennta­málum. „Þá eigum við auð­vitað að horfa á hvernig við und­ir­búum okkar fólk best til að takast á við áskor­anir í atvinnu­líf­inu og hvernig fólk getur menntað sig best til að vera með þá færni sem þarf fyrir fjórðu iðn­bylt­ing­una.“

Hann nefnir síðan útbreiðslu fals­frétta sem dæmi um eitt­hvað sem hægt sé að kenna við­brögð við, enda veki hún upp allskyns vanda­mál. Gott dæmi sé vandi sem teng­ist rangri upp­lýs­inga­dreif­ingu um bólu­setn­ingar.

[adspot]Aðrar lyk­il­spurn­ingar sem snúa að sjálf­ræði borg­ar­anna og hvernig það sé eflt sam­hliða miklum tækni­breyt­ingum snúi til að mynda að per­sónu­vernd og hvernig eigi að vernda einka­líf fólks á tímum þegar öll þessi söfnun upp­lýs­inga er að eiga sér stað i gegnum tækni­fram­farir. „Líka varð­andi dreif­ingu gæða ef það verður mikil hag­ræð­ing í ein­hverjum atvinnu­geirum og mikil auð­söfnun á ein­hverjum stöðum, hvernig tryggjum við það að hún dreif­ist með sann­gjörnum hætti út í sam­fé­lagið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjórðaiðnbyltingin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár