Ótal tækifæri fyrir Ísland í fjórðu iðnbyltingunni

Formaður starfs­hóps for­sæt­is­ráð­herra sem vann skýrslu um Ísland og fjórðu iðn­bylt­ing­una segir að Íslend­ingum hafi gengið vel að nýta sér tækninýj­ungar. Það sjá­ist á árangri þjóð­ar­innar síð­ustu 120 árin.

„Það eru ótal tæki­færi. Ísland er lítið land. Við erum þróað hag­kerfi með sterkt vel­ferð­ar­kerfi og alþjóð­legar rann­sóknir hafa sýnt það að áhrif sjálf­virkni­væð­ingar verða aðeins minni á vinnu­markað hjá þessum ríkjum en öðrum ríkjum.“

Þetta er meðal þess sem Dr. Huginn Freyr Þor­steins­son, sér­fræð­ingur hjá Aton og for­maður starfs­hóps for­sæt­is­ráð­herra sem vann og birti skýrslu sem bar heitið „Ísland og fjórða iðn­bylt­ingin“ í byrjun síð­asta mán­aðar, segir í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans.

Viðtalið birt­ist í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem sýndur var í gær.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Þar segir Huginn að Ísland búi yfir sterkum tækni­legum innviðum sem lands­menn ættu að geta nýtt sér til að ná árangri í fjórðu iðn­bylt­ing­unni. „Að auka verð­mæta­sköpun í sam­fé­lag­inu, það á að geta tek­ist vel til þar.“

Hann bendir á að til þessa hafi Íslend­ingum gengið vel að nýta sér tækni­breyt­ingar. Það sjá­ist ein­fald­lega á þeim mikla árangri sem landið hefur náð á síð­ustu 120 árum. Þannig að við getum alveg haldið áfram. En það eru líka fjölda­margar áskor­anir.“

[adspot]Huginn nefnir í því sam­hengi þriðju iðn­bylt­ing­una, sem í fólst aukin upp­lýs­inga­tækni, tölvu­væð­ing og til­koma gsm síma, svo fátt eitt sé nefnt.

Á örfáum árum hafi símar orðið ómissandi tæki í nútíma­sam­fé­lag­inu og haft gríð­ar­leg áhrif á líf okkar, ekki bara út frá atvinnu­líf­inu heldur einnig vegna sam­fé­lags­legra áhrifa á stjórn­mál, lýð­ræði og fjöl­miðla. „Fjöl­miðlar hafa gjör­breyst á örfáum árum, meðal ann­ars með til­komu sam­fé­lags­miðla og snjall­síma. Þetta er þetta upp­brot sem við ræðum meðal ann­ars í skýrsl­unni.“

Í starfs­hópnum sem tók skýrsl­una saman voru auk Hugins þau Lilja Dögg Jóns­dótt­ir, Guð­mundur Jóns­son, Ragn­heiður H. Magn­ús­dóttir og Krist­inn R. Þór­is­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjórðaiðnbyltingin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár