Það þarf að mæta fjórðu iðnbyltingunni með auknum jöfnuði

Dr. Huginn Freyr Þor­steins­son segir að ef fólk muni upp­lifa að það hafi ekki ábata af tækni­fram­þróun og sjálf­virkni, telji sig skilið eftir, þá muni ekki ríkja sátt um fjórðu iðn­bylt­ing­una.

„Til þess að svona breyt­ingar verði far­sælar fyrir sam­fé­lag þarf að ríkja sam­fé­lags­sátt. Hluti af sam­fé­lags­sátt­inni er að allir borg­ar­arnir skynji ábatann af því að ganga í gegnum þessar tækni­breyt­ingar.“

Þetta sagði Dr. Huginn Freyr Þor­steins­son, sér­fræð­ingur hjá Aton og for­maður starfs­hóps for­sæt­is­ráð­herra sem vann skýrslu um Ísland og fjórðu iðn­bylt­ing­una, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans. Viðtalið birt­ist í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni.

Hægt er að sjá stiklu úr því hér að neðan.

Það þurfi að ríkja sátt í sam­fé­lag­inu um þá þróun sem sé framundan, þ.e. tækni­fram­þróun og aukin sjálf­virkni með fjórðu iðn­bylt­ing­unni, ann­ars geti hún leitt af sér mikil vanda­mál. Ef að fólk upp­lifir það þannig að það sé skilið eftir en sam­fé­lagið sem það býr í er allt orðið markað af þessum breyt­ingum, þá verður ekki sátt um þessar breyt­ingar. Þess vegna þarf að huga sér­stak­lega að dreif­ingu gæð­anna.“

[adspot]Huginn sagði að þegar fyrri iðn­bylt­ingar séu skoð­aðar og metnar sé áherslan oft á meiri hag­vöxt og fram­leiðni til að meta árangur. Það sé gott og blessað enda skili það ábata. En það þurfi líka að horfa til fleiri þátta, eins og jöfn­uðar. Fyr­ir­tæki þurfi áfram að fjár­festa í mannauði og nýsköpun þótt tæknin muni færa þeim ákveðin árangur í byrjun fjórðu iðn­bylt­ing­ar­innar. Ef þau geri það ekki muni fyr­ir­tækin tapa for­skoti sínu. „ Þróunin er svo hröð.“

Huginn sagði að hægt væri að læra af afleið­ingum þeirra breyt­inga sem orðið hafa til dæmis með síð­ustu iðn­bylt­ingu, þar sem fjöldi starfa úrelt­ist og ekki var tekið nægi­lega vel á sam­fé­lags­legum hlið­ar­verk­unum þess. Afleið­ingin sé til dæmis sú mikla óánægja með stjórn­mál sem birt­ist víða um heim í dag. „Það veikir lýð­ræðið og opna umræðu ef fólk upp­lifir að það sé skilið eftir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjórðaiðnbyltingin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár