Gervigreind kemur ekki í staðinn fyrir mannlega dómgreind

Formaður starfs­hóps for­sæt­is­ráð­herra um fjórðu iðn­bylt­ing­una segir að sjálf­virkni­væð­ingin muni eiga sér stað hratt þegar hún fer að fullu af stað. Gervi­greind muni aðal­lega nýt­ast sem lausn á ferlum, og komi ekki í stað­inn fyrir mennsku.

Þetta eru lausnir á ákveðnum ferlum sem þessi tæki ráða við. Það kemur hins vegar ekk­ert í stað­inn fyrir mann­lega dóm­greind. Hana þarf að efla. Hún verður alltaf mik­il­væg­ari þáttur í störfum fólks.“

Þetta sagði Dr. Huginn Freyr Þor­steins­son, sér­fræð­ingur hjá Aton og for­maður starfs­hóps for­sæt­is­ráð­herra sem vann skýrslu um Ísland og fjórðu iðn­bylt­ing­una, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans. Viðtalið birt­ist í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni þar sem þeir ræddu fjórðu iðn­bylt­ing­una, þróun gervi­greindar, sjálf­virkni­væð­ingu og breyttar áherslur á færni.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Aðspurður hvort að það sé langt í það að fólk muni fara að sjá mark­tækan mun á til að mynda starfa­sam­setn­ingu vegna áhrifa af fjórðu iðn­bylt­ing­unni sagði Huginn ekki svo vera. „Þetta mun ger­ast mjög hratt eftir því sem gervi­greindin þró­ast áfram.“

Áhrifin séu þegar farin að eiga sér stað. Sýni­leg­asta dæmið fyrir margt venju­legt fólk sé til að mynda sjálfs­af­greiðslu­kassar í mat­vöru­versl­unum, sem hefur fjölgað hratt á skömmum tíma hér­lendis. Hraðasta þró­unin á Íslandi hafi hins vegar átt sér stað í sjáv­ar­út­vegi.

Eftir nokkur ári mun sjálf­virkni­væð­ingin ger­ast hraðar og þá muni fólk fara að verða meira vart við hana í nærum­hverfi sínu.

Huginn lagði þó áherslu á að það væri hlutir sem ekki væri hægt að sjálf­virkni­væða. Hlutir sem snúi að okkur sem mönnum. Gervi­greindin muni ekki koma í stað­inn fyrir þá hluti en til að mæta breyt­ing­unum þurfi að inn­leiða aðrar áherslur á færni í mennta­kerfið okkar.

Annars vegar þurfi fleiri Íslend­ingar að skila sér í gegnum vís­inda- og tækni­menntum, þar sem Ísland er aft­ar­lega á mer­inni í alþjóð­legum sam­an­burði. Hins vegar þurfi að hugsa hið almenna mennta­kerfi út frá þáttum sem styrkja mennsk­una. „Hluti eins og gagn­rýna hugsun, til­finn­inga­greind, mann­leg sam­skipti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjórðaiðnbyltingin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár