Vildu tryggja að fleiri ættu séns en Icelandair

Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, ræddi um sam­keppni í flug­geir­anum og hvernig eft­ir­litið hafi beitt sér til að tryggja hana í 21 á Hring­braut í vik­unni.

„Rannsókn okkar á afgreiðslu­tímunum laut að því að WOW air fékk ekki jafn góða afgreiðslu­tíma og Icelandair og fyr­ir­komu­lag­inu sem er á Kefla­vík­ur­flug­velli í úthlut­un­inni sem byggir svo­lítið á hefð­ar­reglum. Ef þú átt ein­hvers slott þá getur þú haldið þeim.“

Þetta sagði Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, um rann­sókn sem eft­ir­litið fram­kvæmdi á stöðu mála í flug­geir­anum á sínum tíma í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið skil­aði 197 blað­síðna áliti til Sam­göngu­stofu vegna fyr­ir­komu­lags við úthlutun afgreiðslu­tíma til flug­fé­laga á Kefla­vík­ur­flug­velli í októ­ber 2015.

Páll segir að nið­ur­staða eft­ir­lits­ins í því máli hafi verið að „beina ákveðnum til­mælum til stjórn­valda til þess að tryggja að það ættu fleiri séns en stóri aðil­inn Icelandair sem situr fyrir, þegar úthlutað er nýjum afgreiðslu­tímum.“

[adspot]Aðspurður um hvort að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi skoðað stöðu sam­keppn­is­mála í flug­geir­anum frá öðrum hliðum þá svar­aði Páll því ját­andi.

Til dæmis hafi ýmis­legt í starf­semi Kefla­vík­ur­flug­vallar verið skoðað, meðal ann­ars flug­afgreiðsla og bíla­stæðin í kringum flug­völl­inn. „Sumt af því er í gangi enn þá.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár