Safna undirskriftum fyrir nýtt flugfélag

Fólki gefst nú kostur á skrá sig sem þátt­tak­endur í nýju flug­fé­lagi sem far­þegar, fjár­festar og sam­starfs­að­ilar á heima­síð­unni flyicelandic.is. Á síð­unni segir að FlyIcelandic geti ann­að­hvort orðið að nýju flug­fé­lagi eða vild­ar­klúbbi.

Fólki og fyr­ir­tækjum býðst nú að ger­ast þátt­tak­endur í nýju flug­fé­lagi, FlyIcelandic, sem far­þegar, fjár­festar og sam­starfs­að­ilar. Vefsíðan flyicelandic.is var opnuð í gær þar sem fram kemur að mark­miðið sé að afla stuðn­ings við ann­að­hvort nýtt flug­fé­lag eða vild­ar­klúbb sem útvegar félags­mönnum ódýrt flug. Jafn­framt segir að FlyIcelandic hafi engin tengsl við WOW air en að þeir sem standi að síð­unni hafi ára­tuga reynslu í flug­rekstri og aðgang að Airbus flug­véla­flota sem leggur áherslu á plast­laust flug.

Taka saman lista yfir þá hafa áhuga á nýju flugfélagi eða vildarklúbbi

Á heima­síðu FlyIcelandic segir að mark­miðið sé að aðstoða íslenska ferða­þjón­ustu og fyrrum starfs­menn WOW air að kom­ast aftur í loftið á „öruggum starfs­grund­velli“. Þá segir að FlyIcelandic geti ann­að­hvort orðið að nýju flug­fé­lagi eða vild­ar­klúbbi í sam­starfi við nýtt eða starf­rækt flug­fé­lagið. „Með sam­hentu átaki von­umst við til að hægt verði að fylla uppí það skarð sem mynd­að­ist í íslenskum flug­sam­göngum við fall WOW air,“ segir á heima­síð­unni.

Fólk og fyr­ir­tækjum er boðið að skrá sig á síð­unni án skuld­bind­ingar til að fá upp­lýs­ingar um fram­gang verk­efn­is­ins og aðgang að for­sölu „Ecomiles“ sem sam­kvæmt síð­unni eru flugmílur á heild­sölu­verði og njóta ýmissa fríð­inda sem FlyIcelandic far­þegi.

Viðskiptagrunnur fyrir nýtt félag

Jóel Krist­ins­son, tals­maður FlyIcelandic, segir í sam­tali við Morg­un­blaðið að þeir sem standi að hug­mynd­inni stefni ekki sjálfir að því að reka flug­fé­lag heldur séu þeir að stefna að því að setja upp við­skipta­grunn fyrir nýtt félag. Hann segir verk­efnið ekki tengt vef­síð­unni hlut­hafi.com og ekki heldur hug­myndum sem Hreiðar Her­manns­son hefur kynnt í vik­unni um stofnun nýs íslensks flug­fé­lags.

Á vef­síð­unni kemur fram að þeir sem standi að verk­efn­inu hafi „ára­tuga reynslu í flug­rekstri og aðgang að Airbus-flug­véla­flota“. Aðgang­ur­inn að flug­véla­flot­anum er að sögn síð­unnar í gegnum JetBanus, fyr­ir­tæki sem leigir út flug­vélar sem, sam­kvæmt Morg­un­blað­inu, Ástþór Magn­ús­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­fram­bjóð­andi og athafna­maður, kemur að.

Í sam­tali við Frétta­blaðið segir Jóel að um sjö­tíu manns og fjögur fyr­ir­tæki hafi skráð sig á síðu FlyIcelandic síð­degis í gær. Hann segir jafn­framt að þetta sé ekki hóp­fjár­mögnun eins heldur sé aðeins verið að bjóða fólki að styðja mál­stað­inn. „Við erum bara að sjá hvort fólk er til­búið að taka þátt. Ef það er mikil þátt­taka þá er hægt að fara í svo­leiðis fjár­mögnun,“ segir Jóel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár