WOW air seldi losunarheimildir rétt fyrir gjaldþrot

WOW air seldi los­un­ar­heim­ildir fyrir um 400 millj­ónir til þess að eiga fyrir launa­greiðslum í mars. Þrota­búið fékk greiðsl­una í hend­urnar eftir gjald­þrotið.

Flug­fé­lagið WOW air seldi los­un­ar­heim­ildir sínir vegna út­blást­urs skömmu áður en að félagið varð gjald­þrota um síð­ustu mán­aða­mót. Félagið fékk um 400 millj­ónir króna fyrir heim­ild­irnar en greiðsl­una átti að nota til að standa straum af launa­greiðslum mars­mán­aðar. Greiðslan barst þó ekki fyrr en nokkrum dögum eftir að félagið var gefið upp til gjald­þrota­skipta og rann því and­virði los­un­ar­heim­ild­anna til þrota­bús­ins. Frá þessu er greint í Við­skipta­Mogg­anum í dag.

Fengu úthlutaðar ríflega 150 þúsund einingar fyrir 2019

Flug­rek­endur þurfa að afla sér los­un­ar­heim­ilda í tengslum við koltví­sýr­ingslosun sem til fellur vegna starf­semi þeirra. Slíkar heim­ildir ganga kaupum og sölum á mark­aði. Samkvæmt umfjöllun Við­skipta­Mogg­ans hafði WOW air verið úthlutað 152.382 ein­ingum fyrir árið í ár en hver ein­ing jafn­gildir losun eins tonns af koltví­sýr­ingi. Ljóst er þó að WOW air hefði þurft að kaupa þær til baka síðar á árinu og var salan því hugsuð sem skamm­tíma­að­gerð vegna þröngrar lausa­fjár­stöðu.

Los­un­ar­heim­ildir sem WOW air hefur fengið úthlut­aðar án end­ur­gjalds á síð­ustu árum hafa sífellt orðið verð­mæt­ari en hver los­un­ar­heim­ild hefur hækkað úr rúmum 13 evrum í rúmar 24 evrur á einu ári. [adspot]

Jafn­framt kemur fram í umfjöllun Við­skipta­Mogg­ans að WOW air hafði einnig tryggt sér end­ur­gjalds­lausar los­un­ar­heim­ildir upp á 152.382 ein­ingar fyrir árið 2020 og auk þess hafi félagið átt von á 212.286 ein­ingum fyrir árin 2021 tl 2023. Úthlutun los­un­ar­heim­ilda er þó bundin því að flug­rek­andi i hafi gilt flug­rekstr­ar­leyfi og verður þrota­búið því af þeim verð­mætum, sam­kvæmt heim­ildum Við­skipta­Mogg­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár