Kerfið er tilbúið til að takast á við áfallið

Sigurður Ingi Jóhanns­son segir að það verði að koma í ljós hvort hluti af þeim mikla fjölda erlendra rík­is­borg­ara sem flutt hefur til Íslands á síð­ustu árum fari aftur úr landi nú þegar sam­dráttur er í atvinnu­líf­inu.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­fé­lags­ráð­herra, sagði að kerfið hafi verið búið að vera á við­bragðs­stígi gagn­vart gjald­þroti WOW air í tölu­vert langan tíma og því til­búið undir það.

Mikil vinna hefði farið í að greina hin efna­hags­legu áhrif, áhrifin á rík­is­sjóð Íslands, sveit­ar­fé­lög og almennt á fólk. Á rík­is­stjórn­ar­fundi í vik­unni hafi verið farið yfir minn­is­blöð ýmissa ráð­herra þar sem til­greind voru við­brögð þeirra.

Þetta er meðal þess sem kom fram í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, við Sigurð Inga í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni. Þar ræddu þeir meðal ann­ars kjara­samn­inga, fall WOW air, við­bragðs­á­ætlun stjórn­valda og þær miklu sam­göngu­fram­kvæmdir sem fyr­ir­hug­aðar eru á næstu árum.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Aðspurður um hvort að áhrifin á vinnu­markað hafi verið greind sagði Sigurður Ingi að það hafi verið gert að því marki sem var hægt. Sá mikli vöxtur sem verið hefur á Íslandi hefur kallað á mik­inn fjölda inn­flytj­enda þar sem ekki hefur verið nægt vinnu­afl á Íslandi til að standa undir eft­ir­spurn.

Í byrjun mars 2019 voru erlendir rík­is­borg­arar á Íslandi orðnir 45.130 tals­ins og hafði fjölgað um 113 pró­sent frá byrjun árs 2011. Frá byrjun árs 2017 hefur þeim fjölgað um 49 pró­sent.

[adspot]Sigurður Ingi sagði að ein­hver hluti af þessum hópi sé fólk sem komi hingað inn vegna þess að það var upp­grip í vinnu tíma­bundið. Nákvæm­lega hvað ger­ist með þann hóp sé ekki vitað enn sem komið er. „Hvort hann fer fljót­lega úr landi til að finna aðrar sam­bæri­legar stöður þar sem upp­gangur er eða ekki. En við erum hins vegar með nokkuð öfl­ugt rétt­inda­kerfi. Þar sem menn hafa áunnið sér rétt­indi bæði til atvinnu­leys­is­bóta og ábyrgð­ar­sjóðs launa sem við vorum líka búin að styrkja í milli­tím­anum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár