Sigurður Ingi: Rétt ákvörðun að láta WOW air falla

Sigurður Ingi Jóhanns­son segir að erlendur ráð­gjafi hafi sagt við íslensk stjórn­völd að ef þau vildu vera í flug­rekstri þá væri gáfu­legra að stofna sitt eigið rík­is­flug­fé­lag en að stíga inn í WOW air.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, segir að það hafi verið mat íslenska rík­is­ins að stíga ekki inn í rekstur WOW air.

Það mat hefði byggt á umfangs­mik­illi ráð­gjöf, meðal ann­ars erlendis frá. „Ég held að það hafi verið rétt, ekki síst í ljósi þess að tvö fyr­ir­tæki á mark­aði, Icelandair í tvígang og Indigo Partners, fóru í nákvæm­lega sömu skoðun um hvort þeir ættu að fara inn í þetta. En mátu að það væri ekki skyn­sam­legt og of mikil áhætta fólgin í því fyrir þau fyr­ir­tæki.“

Þetta er meðal þess sem kom fram í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, við Sigurð Inga í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni. Þar ræddu þeir meðal ann­ars kjara­samn­inga, fall WOW air, við­bragðs­á­ætlun stjórn­valda og þær miklu sam­göngu­fram­kvæmdir sem fyr­ir­hug­aðar eru á næstu árum.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Sigurður Ingi sagði að við­bragðs­á­ætlun rík­is­ins vegna falls WOW air hefði fyrst og síð­ast verið við­bragðsá­tælun við falli flug­fé­lags. Hún hafi snú­ist um að vernda orð­spor Íslands sem ferða­þjón­ustu­lands og að koma far­þegum til síns heima. Hann telji að það hafi tek­ist vel.

Auk þess hafi félags­mála­ráðu­neytið og Vinnu­mála­stofnun verið undir það búin að takast á við þann mikla atvinnu­missi sem varð við fall WOW air, sem er mesti atvinnu­missir á einum degi í Íslands­sög­unni.

Að sögn Sigurðar Inga hafði vinna við að greina kerf­is­lega mik­il­væg fyr­ir­tæki á Íslandi haf­ist fyrir um ári síðan. Ákveðið hafi verið að byrja á því að greina flug­geir­ann af aug­ljósum ástæðum, enda bæði flug­fé­lög lands­ins þá þegar farin að glíma við rekstr­ar­vanda, þótt aðstæður þeirra til að takast á við hann hafi verið ólíkar. „Við vorum þar af leið­andi búin að greina það það þótt WOW væri mik­il­vægt fyr­ir­tæki þá væri engu að síður meiri áhætta fólgin í því að stiga inn í það eins og við gerðum á fjár­mála­mark­að­inum.“

[adspot]Margir hafa nefnt aðkomu þýskra stjórn­valda að Air Berlin, sem fór í þrot haustið 2017, sem rök­stuðn­ing fyrir því að íslenska ríkið hefði átt að stiga inn í rekstur WOW air. Sigurður Ingi bendir á að sú aðkoma hafi líka skapað ákveð­inn vanda þar sem kröfu­hafar fóru fram á það að ýmsar kröfur, sem hefðu verið þol­in­móð­ari í inn­heimtu, yrðu greiddar strax og þýska ríkið kom þar að. „.Um leið og þýska ríkið var orðið eig­andi að flug­fé­lag­inu, alveg eins og hefði orðið í okkar til­viki, þá var sú þol­in­mæði brostin og menn vildu bara frá greitt.“

Að lokum hafi þýska ríkið setið uppi með umtals­vert tjón þegar Air Berlin hætti á end­anum starf­semi enda hafði verið áfram seldir flug­miðar eftir að það steig inn.„Það má meira að segja geta þess að einn aðil­inn, erlendur, benti okkur á að ef við vildum vera í flug­rekstri þá væri í sjálfu sér gáfu­legra að stofna okkar eigið flug­fé­lag.“

Aðspurður sagði Sigurður Ingi að íslensk stjórn­völd hafi ekki skoðað þann val­mögu­leika. það væru 25-30 flug­fé­lög að fljúga til lands­ins á sumrin og 15 á vet­urna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár