LÍS: Mikil vonbrigði að framfærslan standi í stað hjá LÍN

Lands­sam­tök íslenskra stúd­enta lýsa yfir von­brigðum með að fram­færsla standi í stað í nýjum úthlut­un­ar­reglum LÍN. Auk þess segja sam­tökin það óásætt­an­legt að ekki sé enn búið að lækka skerð­ing­ar­hlut­fallið aftur niður í 35 pró­sent.

Stúdentafulltrúar kjósa á landsþingi LÍS
Stúd­enta­full­trúar kjósa á lands­þingi LÍS Mynd: Viktor Örn Guðmundsson.

Lands­sam­tök íslenskra stúd­enta fagna því að frí­tekju­markið hafi verið hækkað í breyttum úthlut­un­ar­reglum LÍN fyrir skóla­árið 2019 til 2020. Í ályktun frá sam­tök­unum segir að þetta sé afrakstur mik­illar vinnu stúd­enta og sam­einaðrar raddar þeirra og því jákvætt fram­fara­skref. Aftur á móti segja sam­tökin það von­brigði að ekki hafi verið komið til móts við kröfur stúd­enta um hærri grunn­fram­færslu með end­ur­reikn­uðum hús­næð­is­grunni, lækkun skerð­ing­ar­hlut­falls og ferða­lána stúd­enta sem stunda nám erlendis.

Ráðherra kynnir umfangsmiklar breytingar á LÍN

[links]Síðasta föstu­dag sendi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið frá sér til­kynn­ingu um að frí­tekju­mark náms­manna hækki um 43 pró­sent og fari úr 930.000 krónum á ári í 1.330.000 krón­ur. Í til­kynn­ingu kom fram að þessi hækkun komi til móts við óskir náms­manna sem bent hafa á að frí­tekju­markið hafi ekki verið hækkað í takt við verð­lags­breyt­ingar og launa­hækk­anir síðan árið 2014.

Auk þess kom fram í til­kynn­ing­unni að umfangs­miklar kerf­is­breyt­ingar séu fyr­ir­hug­aðar á fyr­ir­komu­lagi LÍN en ráð­gert sé að nýtt frum­varp um sjóð­inn verði lagt fram á Alþingi í haust. Kerf­is­breyt­ing­arnar fel­ast meðal ann­ars í því að náms­styrkur rík­is­ins verði gagn­særri og meira jafn­ræði verði meðal náms­manna og muni nýja kerf­inu þannig svipa meira til nor­rænna náms­styrkja­kerfa.

Lands­sam­tök íslenskra stúd­enta hafa sent frá sér ályktun sem sam­þykkt var ein­róma á lands­þingi sam­tak­anna um helg­ina. Í álykt­un­inni segir að með hækkun frí­tekju­marks­ins hafi mik­il­vægt skref verið tekið í átt að bættum kjörum stúd­enta. Samtökin benda hins­vegar á að munur sé á ann­ars vegar úthlut­un­ar­reglum og hins vegar lögum um LÍN sem eru í end­ur­skoðun.

„Verði hug­myndir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra um nýtt lána­sjóðs­kerfi að veru­leika, meðal ann­ars um nið­ur­fell­ingu á hluta lána að loknu námi, standa úthlut­un­ar­reglur þó óbreyttar þannig að kjör stúd­enta á meðan námi stendur breyt­ast ekki með nýju lána­sjóðs­kerfi. Af þeim sökum vilja stúd­entar hvetja ráð­herra til að koma enn frekar til móts við kröfur stúd­enta þegar tekin er ákvörðun um úthlut­un­ar­reglur fyrir skóla­árið 2020-2021,“ segir í álykt­un­inni.

Framfærslan taki ekki mið af verðlagsbreytingum

Í álykt­un­inni sam­tak­anna er gagn­rýnt að ekki sé búið að lækka skerð­ing­ar­hlut­fallið aftur niður í 35 pró­sent. Skerð­ing­ar­hlut­fall sem leggst á lán þegar tekjur lán­tak­enda fara yfir frí­tekju­mark var hækkað í 45 pró­sent árið 2014. „Sú aðgerð átti að vera tíma­bundin til að bregð­ast við þáver­andi ástandi og því með öllu óásætt­an­legt að fimm árum síðar sé ekki enn búið að lækka skerð­ing­ar­hlut­fallið aftur niður í 35 pró­sent,“ segir í álykt­un­inni.

Auk þess gera sam­tökin alvar­lega athuga­semd við það að fram­færslan standi í stað í nýjum úthlut­un­ar­reglum LÍN og enn fremur að hún taki ekki mið af verð­lags­breyt­ingum. „Það er í raun ígildi lækk­unar þar sem óbreytt krónu­tala á fram­færslu felur í sér lækkun á kaup­mætti. Stúd­entar fara fram á það að end­ur­skoðun á grunn­fram­færslu eigi sér stað með sér­stöku til­liti til hús­næð­is­grunns þar sem gert er ráð fyrir að allir lán­þegar sæki og fái hámarks­hús­næð­is­bætur.“

Jafn­framt lýsa sam­tökin yfir von­brigðum um að ekki hafi verið sam­þykkt að stúd­entar í námi erlendis fái lánað fyrir ferða­lögum fram og til baka einu sinni á hverju ári. Í núver­andi reglum fá stúd­entar erlendis aðeins lán fyrir einni ferð út og annarri ferð heim meðan á öllum náms­ferl­inum stendur. Samkvæmt álykt­un­inni setur það stúd­enta sem hafa ekki færi á að vinna í því landi sem þau stunda nám, í erf­iða stöðu enda þurfa þeir þá að fljúga til Íslands í þeim til­gangi.

LÍN þjóni ekki lengur hlutverki sínu sem félagslegur jöfnunarsjóður

Að lokum segir í álykt­un­inni að fækkun lán­þega und­an­farin ár sé skýr birt­ing­ar­mynd þess að LÍN þjónar ekki lengur hlut­verki sínu sem félags­legur jöfn­un­ar­sjóður. „Það er sam­fé­lag­inu til bóta að tryggja að hver og einn geti sinnt námi sínu af skil­virkni og festu. Kröfur stúd­enta eru til þess gerðar að sjóð­ur­inn þjóni því hlut­verki sem honum var upp­haf­lega ætlað. Vilji mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra standa við gefin lof­orð um besta lána­sjóðs­kerfi á Norð­ur­lönd­unum eru kröfur stúd­enta varð­andi úthlut­un­ar­reglur skýrar, “ segir í álykt­un­inni.

SHÍ skorar á ráðherra að hafa lága framfærslu hugfasta

Stúd­enta­ráð Háskóla Íslands hefur einnig sent frá sér ályktun um úthlut­un­ar­reglur LÍN. Þar segir að hækkun frí­tekju­marks­ins sé fagn­að­ar­er­indi og jafn­framt afrakstur vinnu margra aðila. SHÍ lýsir hins vegar áhyggjum yfir því að fram­færsla stúd­enta var ekki hækkuð í nýjum úthlut­un­ar­reglum en ráðið segir það eina helsta ástæð­una fyrir bágum kjörum og skorti á fjár­hags­legum stuðn­ingi stúd­enta. 

SHÍ skora því á mennta- og menn­ing­armálaráðherra að hafa lága fram­færslu hug­fasta í áfram­hald­andi vinnu við lánasjóðsfrum­varpið og gera enn betur í næstu úthlut­un­ar­reglum til þess að tryggja hlut­verk lánasjóðsins sem jöfnun­ar­sjóð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár