Frítekjumark námsmanna hækkar um 43 prósent

Samkvæmt nýjum úthlut­un­ar­reglum LÍN hækkar frí­tekju­mark náms­manna um 43 pró­sent og fer úr 930.000 krónum á ári í 1.330.000 krónur.

Frí­tekju­mark náms­manna hækkar um 43 pró­sent og fer úr 930.000 krónum á ári í 1.330.000 krónur, sam­kvæmt nýjum úthlut­un­ar­reglum Lána­sjóðs íslenskra náms­manna fyrir náms­árið 2019 til 2020. Í til­kynn­ingu frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu segir að þessi hækkun komi til móts við óskir náms­manna sem bent hafa á að frí­tekju­markið hafi ekki verið hækkað í takt við verð­lags­breyt­ingar og launa­hækk­anir síðan árið 2014.

30 prósent niðurfelling á hluta af námslánum við prófgráðu

Í til­kynn­ing­unni segir að umfangs­miklar kerf­is­breyt­ingar séu fyr­ir­hug­aðar á fyr­ir­komu­lagi LÍN en ráð­gert sé að nýtt frum­varp um sjóð­inn verði lagt fram á Alþingi í haust. Kerf­is­breyt­ing­arnar fel­ast meðal ann­ars í því að náms­styrkur rík­is­ins verði gagn­særri og meira jafn­ræði verði meðal náms­manna og muni nýja kerf­inu þannig svipa meira til nor­rænna náms­styrkja­kerfa. Samkvæmt til­kynn­ing­unni er stefnt að því að nýtt stuðn­ings­kerfi taki gildi frá og með haustinu 2020.

Náms­að­stoðin sem sjóð­ur­inn mun veita verður áfram í formi lána á hag­stæðum kjörum og til við­bótar verða beinar styrkja­greiðslur vegna fram­færslu barna og 30 pró­sent nið­ur­fell­ing á hluta af náms­lánum við lok próf­gráðu innan skil­greinds tíma.

Í til­kynn­ing­unni segir að þetta sé gert til þess að bæta fjár­hags­stöðu nem­enda, ekki síst þeirra sem hafa börn á fram­færi, og hvetja nem­endur til að klára nám sitt á til­settum tíma. „Í því felst ávinn­ingur fyrir náms­menn sem og þjóð­hags­legur ávinn­ingur fyrir sam­fé­lagið allt sem útreikn­ingar gera ráð fyrir að geti numið allt að 1,2 millj­örðum kr. á ári, “ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár