Ekki tókst að kjósa lögmæta stjórn Eimskips

Ekki tókst að kjósa lög­mæta stjórn Eimskips á aðal­fundi félags­ins í gær. Líf­eyr­is­sjóð­irnir studdu tvo karl­kyns fram­bjóð­endur en Samherji, stærsti ein­staki hlut­haf­inn, aðra tvo karla. Nið­ur­staðan upp­fyllti ekki skil­yrði um kynja­kvóta.

Ekki tókst að kjósa lög­mæta stjórn í Eimskip á aðal­fundi félags­ins sem fram fór í gær. Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands, þar sem fjallað er um nið­ur­stöður aðal­fund­ar­ins, segir að gengið hafi verið til kosn­inga í aðal­stjórn Eimskips en að nið­ur­staðan hafi verið sú að „ekki tókst að kjósa lög­mæta stjórn og því úrskurð­aði fund­ar­stjóri að fresta fund­inum til fram­halds­að­al­fundar sem hald­inn verður innan mán­aðar.“

[links]Við­mæl­endur Kjarnans úr hópi hlut­hafa segja að ástæðan hafi verið þrá­tefli vegna nið­ur­stöðu kosn­inga milli þeirra sex ein­stak­linga sem sótt­ust eftir fimm aðal­stjórn­ar­sætum.

Fjórir karlar og tvær konur

Tvær konur, Guðrún Blöndal og Hrund Rúd­ólfs­dóttir, buðu sig fram og voru því í reynd sjálf­kjörnar vegna laga um kynja­kvóta í stjórnum félaga sem eru með fleiri en 50 starfs­menn sem segja að hlut­fall hvors kyns í stjórn sé ekki undir 40 pró­sent.

[adspot]Fjórir karlar sótt­ust eftir þeim þremur stjórn­ar­sætum sem eftir voru. Annars vegar var um að ræða Lárus L. Blöndal lög­mann og Vilhjálm Vil­hjálms­son, fyrr­ver­andi for­stjóra HB Granda, sem nutu stuðn­ings íslenskra líf­eyr­is­sjóða sem eiga sam­tals rúm­lega helm­ing allra hluta­bréfa í Eimskip. Hins vegar voru boðnir fram Baldvin Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri við­skipta­þró­unar hjá Samherja og sonur Þor­steins Más Bald­vins­sonar, for­stjóra og eins eig­anda Samherja, og Óskar Magn­ús­son, sem gegnt hefur margs­konar trún­að­ar­störfum fyrir eig­endur Samherja í gegnum tíð­ina og situr í stjórn fjöl­marga félaga sem tengj­ast sam­stæð­unni. Samherji, sem er stærsta útgerð­ar­fé­lag lands­ins og er í ýmiss konar öðrum fjár­fest­ingum í óskyldum greinum, á 27,1 pró­sent hlut í Eimskip og er stærsti ein­staki eig­andi félags­ins.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans fór stjórn­ar­kjörið þannig að allir stærstu hlut­hafar félags­ins settu atkvæði sín á karl­anna fjóra sem voru í fram­boði, enda ljóst að kon­urnar tvær voru sjálf­kjörnar hvernig sem fer. Nið­ur­staðan var sú að Lárus fékk flest atkvæði og Vil­hjálmur næst flest. Baldvin, sem hefur verið stjórn­ar­for­maður Eimskips frá því í sept­em­ber í fyrra, lenti í þriðja sæti og Óskar í því fjórða. Hann neit­aði hins vegar að víkja og því var ekki hægt að kjósa lög­lega stjórn sem upp­fyllti skil­yrði laga um kynja­kvóta. Því þarf að halda fram­halds­að­al­fund innan mán­aðar til að reyna aftur.

Samherji hefði verið með tögl og hagldir

Við­mæl­endur Kjarnans sem áttu full­trúa á fund­inum segja að það hafi verið upp­lifun margra að Samherji væri að gera til­raun til þess að ná meiri­hluta í stjórn­inni á grund­velli 27,1 pró­sent eign­ar­hluta félags­ins. Líf­eyr­is­sjóð­irnir hafi hins vegar spyrnt á móti því og haft betur.

Samherji keypti um fjórð­ungs­hlut í Eimskip í fyrra­sumar og í sept­em­ber 2018 var hald­inn hlut­hafa­fundur til að kjósa nýja stjórn. Á þeim fundi tók Baldvin Þor­steins­son við stjórn­ar­taumunum og Guðrún Blöndal var kjörin ný í stjórn. Þótt Guðrún byði sig fram sem óháður stjórn­ar­maður þá naut hún stuðn­ings Samherja í starfið í haust.

Á aðal­fund­inum í gær, hefði Óskar verið kjör­inn til stjórn­ar­starfa ásamt Baldvini, væri Samherji því að bæta við sig stjórn­ar­manni að mati ýmissa stórra hlut­hafa. Þá væri Samherji með meiri­hluta stjórn­ar­manna, vara­menn í stjórn og for­stjóra félags­ins, en í jan­úar síð­ast­liðnum var Vil­helm Már Þor­steins­son, frændi stjórn­ar­for­manns­ins og eig­enda Samherja, ráð­inn í starf for­stjóra Eim­skips.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöll

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár