Icelandair hækkar hratt í fyrstu viðskiptum – Flestir aðrir lækka

Gjald­þrot WOW air hefur mikil áhrif á íslenskan hluta­bréfa­markað. Icelandair Group, stærsti sam­keppn­is­að­ili WOW air, hefur rokið upp í virði en flest önnur félög, sem sum hver verða beint eða óbeint fyrir ahrifum af þroti WOW air, lækka.

Virði bréfa í Icelandair Group hefur hækkað um 13,83 pró­sent í fyrstu við­skiptum í Kauphöll Íslands í morgun. Nær öll önnur félög sem við­skipti hafa farið fram með bréf í hafa hins vegar lækkað í virði.

Ástæðan eru þau tíð­indi að WOW air hafi hætt starf­semi í morgun.

Á meðal þeirra félaga sem hafa lækkað skarp­ast eru Arion banki (2,93 pró­sent lækkun), einn helsti kröfu­hafi WOW air. Arion banki sendi frá sér til­kynn­ingu til Kaup­hallar í morgun vegna mál­efna WOW air þar sem sagði að „í ljósi umfjöll­unar í fjöl­miðlum um mál­efni WOW Air skuld­bind­ingar félags­ins við Arion banka vill bank­inn taka fram að stöðvun rekstrar WOW Air mun ekki hafa veru­leg bein áhrif á rekstr­ar­af­komu bank­ans að teknu til­liti til ann­arra þátta í rekstri bank­ans. “

Í til­kynn­ing­unni segir enn fremur að: „Arion banki verður fyrir ein­skiptis­kostn­aði vegna þessa atburðar sem hefur ekki bein áhrif á reglu­legar tekjur og almennan rekstr­ar­kostnað bank­ans. Óvíst er um áhrif þess að WOW Air hættir starf­semi á ferða­þjón­ustu og íslenska hag­kerfið í heild. Fjár­hags­leg mark­mið bank­ans til næstu ára, t.a.m. varð­andi þróun eig­in­fjár, eru óbreytt.“

Á meðal ann­arra félaga sem hafa lækkað eru Festi, sem áður hét N1, en það félag seldi WOW air elds­neyti. Þá hafa bréf í fast­eigna­fé­lög­unum Eik (3,20 pró­sent lækkun), Reitum (3,01 pró­sent lækkun) og Reginn (2,69 pró­sent lækkun) öll lækkað í fyrstu við­skiptum.

Hluta­bréf í Eimskip hafa líka tekið skarpa dýfu, eða um 3,10 pró­sent.

Bréf hófust í dag með við­skipti Kviku banka á aðal­mark­aði Kaup­hallar Íslands, en hann er annar bank­inn sem skráður er á markað á eftir Arion banka, sem var skráður í fyrra. Þegar þetta er skrifað hafa ekki átt sér stað nein við­skipti með bréf í Kviku það sem af er degi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár