Úthluta 3,5 milljörðum til uppbyggingar á 130 ferðamannastöðum

Alls verður 3,5 millj­örðum króna úthlutað úr rík­is­sjóði til upp­bygg­ingar inn­viða og ann­arra verk­efna á 130 ferða­manna­stöðum á næstu þremur árum. Þá verður 1,3 millj­örðum varið sér­stak­lega til land­vörslu.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ferðamálaráðherra kynntu úthlutun úr Landsáætlun og Framkvæmdasjóði ferðamannastaða í dag.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra og Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir ferða­mála­ráð­herra kynntu úthlutun úr Lands­á­ætlun og Fram­kvæmda­sjóði ferða­manna­staða í dag. Mynd: Stjórnarráðið

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, tilkynntu í dag um 3,5 milljarða úthlutun til uppbyggingar innviða og annarra verkefna á 130 fjölsóttum stöðum í náttúru Íslands og á öðrum ferðamannastöðum vítt og breitt um landið. Einnig var til­kynnt um rúm­lega 500 millj­ón króna styrk úr Fram­kvæmda­sjóði ferðamannastaða og 1,3 millj­arða út­hlut­un til land­vörslu.

Leggja hjólaleið við Jök­uls­ár­gljúf­ur

Ráðherr­arn­ir kynntu í dag í sam­ein­ingu verk­efna­áætl­un­ Landsáætl­un­ar um upp­bygg­ingu innviða til næstu þriggja ára. Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu segir að markmiðið sé að halda áfram þeirri miklu uppbyggingu innviða sem hafin er til verndar náttúru landsins og menningarsögulegum minjum, sem og uppbyggingar ferðamannastaða. Dæmi um framkvæmdir sem átt hafa sér stað eða eru hefjast í verkefnaáætlun Landsáætlunar er Snorralaug og minjasvæðið í Reykholti. Í verkefnaáætluninni segir að umhverfi Snorralaugar hefur látið mjög á sjá vegna mikillar umferðar ferðamanna við hana. Því er unnið að því að lagfæra skemmdir og styrkja umgjörð laugarinnar, sem og annarra minja á svæðinu.

Þá hefur átt sér stað mikil uppbygging í Þjóðgarðinum á Snæfellsnesi, meðal annars með framkvæmdum við gestastofu við Malarrif og uppbyggingu innviða við Djúpalónssand. Fram undan í áætluninni er að bæta göngustíg við Öndverðarnes, stækka og malbika bílastæði við Skarðsvík og setja upp útsýnispalla.

Meðal nýrra verkefna í áætluninni er meðal annars að ráðast í fyrsta áfanga hjólaleiðar við Jökulsárgljúfur sem liggur frá Ásbyrgi í átt að Dettifoss. En gríðarleg aukning hefur orðið í reiðhjólaumferð á því svæði.

Hæsti styrkurinn í innviðauppbyggingu við Goðafoss

Auk þess tilkynntu ráðherrarnir tveir um styrki til fjörutíu verkefna úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Í heildina nemur styrkupphæðin 505 milljónum króna en hæsti styrkurinn fer til innviðauppbyggingar við Goðafoss sem er samkvæmt tilkynningunni komin á lokastig eftir markvisst uppbyggingarstarf á undanförnum árum. Önnur verkefni sem fá hærri en 30 milljóna króna styrki eru Breiðin á Akranesi, Laufskálavarða í Álftaveri, Reykjadalur og Hveradalir í Ölfusi.

Auk þeirra ráðstafana sem gerðar eru með úthlutun Landsáætlunar og Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða er áætlað að verja um 1,3 milljörðum króna sérstaklega til landvörslu á næstu þremur árum. Þetta er gert til að tryggja ráðningu heilsársstarfsmanna sem og mönnun á háannatíma á fjölsóttum stöðum og friðlýstum svæðum.

Náð að lyfta grettistaki

Guðmundur Ingi Guðbrandsson segir í tilkynningunni að í dag kynntu hann og Þórdís Kolbrún áframhaldandi stórsókn við uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum og náttúruperlum um land allt. „Aldrei hefur meiri fjármunum verið varið til slíkrar uppbyggingar en í tíð núverandi ríkisstjórnar og samhliða hefur fengist betri yfirsýn svo hægt er að forgangsraða verkefnum eftir því hvar þörfin er brýnust.“

Þórdís Kolbrún tekur í sama streng og segir ferðaþjónustu vera ein af grunnstöðvum íslensk atvinnulífs. „Hún á allt sitt undir því að við varðveitum töfra íslenskrar náttúru. Fyrir ári síðan kynnti ríkisstjórnin markvissa sókn í uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum í náttúru Íslands og sannarlega höfum við náð að lyfta grettistaki. Framkvæmdasjóður ferðamannastaða og Landsáætlun um innviðauppbyggingu gegna hér lykilhlutverki og saman ætlum við að tryggja að íslensk náttúra og ferðaþjónusta geti blómstrað hlið við hlið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár