Virði Icelandair rýkur upp í fyrstu viðskiptum

Icelandair Group er eina félagið í Kaup­höll­inni sem hækkar í virði í fyrstu við­skiptum dags­ins. Arion banki, helsti lán­ar­drott­inn WOW air, lækkar mest.

Hluta­bréf í Icelandair Group hafa hækk­uðu um 16,05 pró­sent í fyrstu við­skiptum í morgun, en hækkun á bréfum félags­ins þegar þetta er skrifað nemur 10,47 pró­sentum. Á sama tíma hafa bréf í Arion banka lækkað um 3,22 pró­sent, eða mest allra félaga í Kauphöll Íslands á fyrstu metrum við­skipta dags­ins.

Ástæðan er staða WOW air, en í gær var til­kynnt að Indigo Partners hefðu slitið við­ræðum um aðkomu að flug­fé­lag­inu og að við­ræður um aðkomu Icelandair Group að því hefðu haf­ist. Arion banki er helsti lán­ar­drott­inn WOW air.

Í til­kynn­ingu sem Icelandair Group sendi frá sér til Kaup­hallar Íslands í gær­kvöldi sagði að í kjöl­far til­kynn­ingar frá WOW air um slit við­ræðna við Indigo Partners hafi stjórn Icelandair Group sam­þykkt að hefja við­ræður við WOW air um aðkomu að rekstri félags­ins. „Ef af verður mun aðkoman byggja á sjón­ar­miði sam­keppn­is­réttar um fyr­ir­tæki á fallandi fæti. Við­ræð­urnar fara fram í sam­ráði við stjórn­völd.“

Rík­is­stjórn Íslands sendi frá sér til­kynn­ingu vegna máls­ins á nán­ast sama tíma og til­kynn­ingar flug­fé­lag­anna tveggja birt­ust. Þar sagði: „Stjórn­völd hafa síð­asta árið fylgst með erf­ið­leikum í alþjóð­legum flug­rekstri og sam­keppn­is­stöðu íslenskra flug­fé­laga í því ljósi. Eig­endur WOW air hafa um nokk­urra mán­aða skeið leitað leiða til að tryggja rekstur félags­ins og hafa átt við­ræður við fjár­festa, flug­rek­endur og aðra hag­hafa. Hingað til hafa þær við­ræður ekki skilað þeim árangri sem eig­andi félags­ins stefndi að. ­Rík­is­stjórnin mun áfram fylgj­ast grannt með fram­vind­unni og bindur vonir við að við­ræður félag­anna muni skila far­sælli nið­ur­stöð­u.“

Hávær orðrómur hafði verið uppi um það síð­ustu daga að við­ræðum Indigo Partners við WOW air væri lokið þó að form­lega hefði ekki verið til­kynnt um það og flestir við­mæl­endur Kjarnans sem starfa á mark­aði reikn­uðu með að síð­asta björg­un­ar­til­raunin sem gerð yrði með WOW air yrði alltaf með ein­hverjum hætti í fangi Icelandair, og að öllum lík­indum yrði leitað til stjórn­valda eftir lið­sinni.

Í gær hækk­uðu hluta­bréf í Icelandair Group um 7,77 pró­sent í 544 millj­óna króna við­skiptum. Á sama tíma lækk­uðu bréf í Arion banka um 4,24 pró­sent í 125 millj­óna króna við­skiptum. Því virð­ast þátt­tak­endur á mark­aði hafa verið byrj­aðir að veðja á þessa útkomu áður en að greint var frá henni form­lega með til­kynn­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár