Már: „Það voru 36 milljarðar lausir“

Már Guð­munds­son segir að einn stór aflandskrónu­eig­andi, sem sé ekki rétt að kalla vog­un­ar­sjóð, sé enn að skoða stöðu sína. Það sé vel opið að aðil­inn ákveði að fara ekki úr landi með fjár­muni sína.

„Það voru 36 millj­arðar lausir. Þannig að við höfum verið að búa okkur undir það að það séu bara 36 millj­arðar sem flæði núna út á mjög stuttum tíma. En af mörgum ástæðum þótti okkur betra að kom­ast hjá því að við þessa 36 bætt­ust 25.“

Þetta sagði Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni, þar sem þeir ræddu um nýsett lög sem heim­il­uðu aflandskrónu­eig­endum að fara með eignir sínar úr landi. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan:

Frum­varpið sem var sam­þykkt fól í sér að heim­ila eft­ir­stand­andi aflandskrónu­eig­endum að fara út með eignir sínar og lækk­aði sömu­leiðis bind­inga­hlut­fall á reiðufé sem kemur hingað til lands úr 20 pró­sent í 0 pró­sent.

Mið­flokk­ur­inn lagð­ist í mál­þóf á Alþingi gegn því að frum­varpið yrði sam­þykkt og tafði með því afgreiðslu þess. Seðla­bank­inn hafði varað við því að afgreiða þyrfti frum­varpið áður en að ákveð­inn skulda­bréfa­flokkur kæmi á gjald­daga 26. febr­úar, ann­ars myndi Seðla­bank­inn þurfa að eyða meiri forða til að koma í veg fyrir geng­is­fall íslensku krón­unnar í tengslum við losun aflandskróna vegna þess að 25 millj­arðar aflandskróna hefðu getað losnað.

[adspot]Már segir að þetta hafi ekki raun­gerst, að minnsta kosti ennþá. „Okkar von er sú að þetta hafi verið nægj­an­lega tím­an­lega til að hún muni ekki raun­ger­ast. Auðvitað var þarna einn stór aðili, sem vill bara gjarnan vera hér áfram og er ekki vog­un­ar­sjóður á neinn hátt, meira svona gam­al­dags fjár­fest­ing­ar­sjóður og frekar hæg­fara í öllu og veltir öllu nákvæm­lega fyrir sér. Hann er núna ennþá að skoða þessa stöðu og það er vel opið að hann fari ekki út.“

Seðla­bank­inn greip inn í gjald­eyr­is­mark­að­inn á þriðju­dag og keypti gjald­eyri fyrir 2,5 millj­arða króna til að vinna gegn veik­ingu íslensku krón­unnar. Már sagði að Seðla­bank­inn ráði þó vel við það útflæði sem gæti orðið. „Aðilar á mark­aði hafa verið að kvarta undan því að hin sér­staka bindi­skylda á fjár­magnsinn­streymi, að hún væri að trufla virkni mark­að­ar­ins vegna þess að það væri skortur á fram­boði og það þyrfti fleiri fjár­festa inn á þennan markað, og líka erlenda fjár­festa. Að mínu mati var sumt af þessu svo­lítið ofsagt hjá þeim, en það var svo­lítið til í þessu, að því að það voru aðrar ástæður fyrir því sem var að ger­ast á mark­aðnum. En ef það hefði bæst við að þessir 25 millj­arðar væru að fara út, þá hefði hlut­deild erlendra fjár­festa í skulda­bréfa­mark­aðnum, sem er mjög lág hér á Íslandi miðað við ann­ars staðar, og þarf kannski að vera lág vegna þess að við erum við­kvæm­ari mark­aður, hún hefði lækkað enn frekar og farið langt niður fyrir þessi örygg­is­mörk sem við þurfum að hafa á því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabanki

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár