Breytingar á barnalögum og lögum er varða skipta búsetu og meðlag kynntar

Breyt­ing­arnar eru fyrst og fremst tví­þættar. Annars vegar er um að ræða breyt­ingar sem snúa að skiptri búsetu barns og rétt­ar­á­hrifum þess og hins vegar á ákvæðum er varða fram­færslu barna og með­lag.

Börn að leik.
Börn að leik. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Dóms­mála­ráðu­neytið hefur kynnt til sam­ráðs drög að frum­varpi til breyt­inga á barna­lögum og fleiri lögum sem varða skipta búsetu og með­lag en þau má finna inn á sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Umsagn­ar­frestur er til 4. mars næst­kom­andi.

Þær breyt­ingar sem lagðar eru til á barna­lögum snúa að því að lög­festa ákvæði um heim­ild for­eldra til þess að semja um skipta búsetu barns og umfangs­miklar breyt­ingar á ákvæðum lag­anna um fram­færslu barns og með­lag.

Auk þess eru lagðar til breyt­ingar á öðrum lögum, sem heyra undir mis­mun­andi ráðu­neyti, og snúa að því að ná fram til­teknum rétt­ar­á­hrifum sem tengj­ast breyt­ingum á barna­lögum um skipta búsetu barns auk breyt­inga á ákvæðum um með­lag.

Aðstöðumunur foreldra þó nokkur

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu kemur fram að miklar breyt­ingar hafi orðið á við­horfum, stöðu for­eldra og ábyrgð á umönnun og upp­eldi barna á und­an­förnum ára­tugum. Því hafi verið haldið fram að aðstöðu­munur for­eldra, sem kjósa að ala upp börn sín saman án þess þó að búa saman, sé þó nokkur. Þá hafi verið bent á að núver­andi með­lags­kerfi hafi ekki tekið nægi­lega mikið mið af breyt­ingum í sam­fé­lag­inu eða þróun í barna­rétti, en víða hafa verið gerðar breyt­ingar á lög­gjöf sem snýr að með­lagi og sé þá sér­stak­lega horft til hinna Norð­ur­land­anna.

„Þær breyt­ingar sem lagðar eru til í frum­varpi þessu er snúa að barna­lögum eru fyrst og fremst tví­þættar. Annars vegar er um að ræða breyt­ingar sem snúa að skiptri búsetu barns og rétt­ar­á­hrifum þess og hins vegar á ákvæðum er varða fram­færslu barna og með­lag. Auk þess eru lagðar til breyt­ingar á ýmsum öðrum lögum sem heyra undir mis­mun­andi ráðu­neyti til að ná fram til­teknum rétt­ar­á­hrifum sem tengj­ast breyt­ingum á barna­lögum um skipta búsetu barns auk breyt­inga er varða með­lag,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Markmiðið að stuðla að sátt

Í frum­varp­inu er meðal ann­ars nýtt ákvæði um heim­ild til að semja um skipta búsetu barns, lög­bundnar for­sendur samn­inga for­eldra um for­sjá, búsetu og umgengni í við­eig­andi laga­á­kvæðum, nýtt ákvæði um sam­tal að frum­kvæði barns, skýr­ari ákvæði um rétt barns til að tjá sig og gagn­gerar breyt­ingar á ákvæðum um fram­færslu og með­lag þar sem lögð er áhersla á aukið samn­ings­frelsi, lág­marks­fram­færslu­kostnað barns, til­lit til tekna beggja for­eldra og til­lit til umgengni.

Markmið með þessum nýjum ákvæðum sem heim­ila skipta búsetu barns er að stuðla að sátt og jafn­ari stöðu þeirra for­eldra sem fara sam­eig­in­lega með for­sjá barns og ákveða að ala það upp saman á tveimur heim­ilum, sam­kvæmt drög­unum.

Samningurinn gerir ríkar kröfur til foreldra um samstarf

Þetta nýja fyr­ir­komu­lag gerir ráð fyrir að for­eldrar geti alfarið unnið saman í öllum málum er varða barnið. Samn­ingur um skipta búsetu barns gerir því ríkar kröfur til for­eldra um sam­starf, virð­ingu, til­lit­semi og sveigj­an­leika.

Ekki er gert ráð fyrir að búseta barns verði að vera nákvæm­lega jöfn á báðum heim­ilum í drögum að frum­varp­inu. Almennt skuli gera ráð fyrir því að barn búi álíka jafnt til skiptis hjá for­eldrum, en að öðru leyti sé það í höndum for­eldra að finna það fyr­ir­komu­lag sem hentar best þörfum barns­ins. For­eldrar skulu kom­ast að sam­komu­lagi um hjá hvoru þeirra barn eigi lög­heim­ili og hjá hvoru þeirra barn eigi búsetu­heim­ili.

Í frum­varp­inu er gert ráð fyrir að samn­ingur um skipta búsetu sé háður stað­fest­ingu sýslu­manns. Með hlið­sjón af ríkum kröfum um sam­starf for­eldra og sam­eig­in­lega ákvarð­ana­töku er ekki gert ráð fyrir að dóm­stóll geti dæmt skipta búsetu barns þegar for­eldra greinir á.

Miðað er við að eft­ir­far­andi for­sendur þurfi að vera til staðar svo sýslu­maður geti stað­fest samn­ing um skipta búsetu barns:

  • Sam­eig­in­leg for­sjá.
  • Virkt sam­starf for­eldra.
  • Sam­eig­in­leg ákvarð­ana­taka.
  • Nálægð heim­ila.
  • Sam­komu­lag um lög­heim­ili barns og búsetu­heim­ili barns.

Breytingar á ákvæðum um framfærslu barns og meðlag

Í frum­varp­inu eru lagðar til gagn­gerar breyt­ingar á ákvæðum barna­laga um fram­færslu barns og með­lag. Markmið með nýju með­lags­kerfi er að koma til móts við sjón­ar­mið um sam­eig­in­lega ábyrgð beggja for­eldra á fram­færslu barns, sam­stöðu for­eldra og virk­ari þátt í sam­skiptum og sam­veru með barni. Lagt er til að hverfa frá því að miða með­lag við barna­líf­eyri sem ákveð­inn er á grund­velli laga um almanna­trygg­ingar.

Í frum­varp­inu er lagt til að í með­lags­úr­skurði verði lagður til grund­vallar fast­mót­aður lág­marks­fram­færslu­kostn­aður barns sem byggir á neyslu­við­miðum. Ef með­lags­greið­andi hefur umtals­verðar tekjur er að auki gert ráð fyrir að unnt verði að úrskurða eða dæma með­lags­skylt for­eldri til að greiða aukið með­lag.

Nýtt með­lags­kerfi byggir fyrst og fremst á eft­ir­far­andi sjón­ar­miðum:

  • Sam­eig­in­legri ábyrgð beggja for­eldra á fram­færslu barns.
  • Auknu frelsi for­eldra til að semja um með­lag.
  • Tilliti til kostn­aðar af fram­færslu barns.
  • Tilliti til tekna beggja for­eldra.
  • Tilliti til umgengni for­eldris sem barnið býr ekki hjá.
  • Tillit tekið til barna­bóta til lög­heim­il­is­for­eldris við útreikn­ing á tekjum þess.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár