Áætla að sætaframboð WOW air dragist saman um 44 prósent

Samkvæmt ferða­á­ætl­unum flug­fé­lag­anna sem fljúga um Kefla­vík­ur­flug­völl á kom­andi sumri mun fram­boð sæta hjá WOW air drag­ast saman um 44%. Icelandair áformar að auka sæta­fram­boð sitt yfir sum­ar­tím­ann um 14%.

Leifsstöð
Leifs­stöð Mynd: Bára Huld Beck

Icelandair áformar að auka sæta­fram­boð sitt yfir sum­ar­tím­ann um 14 pró­sent nú í ár frá því sem var í fyrra að því er fram kemur í ferða­á­ætl­unum flug­fé­lag­anna sem fljúga um Kefla­vík­ur­flug­völl á kom­andi sumri. Áætlanir gera ráð fyrir að fram­boð sæta hjá WOW air drag­ist saman um 44 pró­sent. Hjá öðrum flug­fé­lögum sem fljúga um Kefla­vík­ur­flug­völl verður sam­an­lagt um 4 pró­sent sam­dráttur.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Isavia sem send var út í dag en þar er bent á að hafa beri í huga að þessi flug­á­ætlun, sem og aðrar, geti tekið breyt­ingum hjá flug­fé­lög­unum.

Mesta fram­boð á flug­sætum verður til og frá Kaup­manna­höfn, sam­kvæmt Isavia. Framboð á sætum til og frá Kaup­manna­höfn eykst um níu pró­sent frá því sem var í fyrra. Heild­ar­fram­boð á flug­sætum minnkar þó og fer úr 7,9 milljón flug­sætum á sum­ará­ætlun í fyrra niður í 7,1 milljón flug­sæta í ár. Það er sam­dráttur upp á 10 pró­sent.

„Mis­mun­andi er þó hvort félögin eru að minnka sæta­fram­boð eða auka það. Wizz air eykur sæta­fram­boð sitt um 15 pró­sent, SAS um 22 pró­sent og Finnair um 10 pró­sent á meðan easyJet minnkar fram­boðið um 11 pró­es­ent, British Airways um 23 pró­sent og Norwegian um 14 pró­esnt,“ segir í til­kynn­ingu Isavia.

Útlit fyrir að flugsætum til og frá Bandaríkjunum muni fækka

Samkvæmt áætl­unum félag­anna fyrir næsta sumar er útlit fyrir að flug­sætum til og frá Banda­ríkj­unum fækki um 29 pró­sent og til og frá Bret­landi um 22 pró­sent. Sæta­fram­boð til og frá Þýska­landi eykst hins vegar um 10 pró­sent, til og frá Noregi og Sviss um 16 pró­sent og Kanada um 18 pró­sent. Samkvæmt Isavia er helsta skýr­ingin á minna fram­boði banda­rískra flug­sæta fækkun áfanga­staða í Banda­ríkj­unum og færri flug­sæti til og frá Bret­landi geta skýrst af minna sæta­fram­boði hjá bæði easyJet og British Airways í sumar.

Sæta­fram­boð eykst á leiðum til og frá Kaup­manna­höfn, eða um 9 pró­sent milli ára. Þá eykst fram­boðið um 16 pró­sent til og frá Ósló. Það dregst saman um 18 pró­sent til og frá JFK-flug­velli í New York og um 9 pró­sent til og frá París.

Tölurnar gilda fyrir tíma­bilið apríl til októ­ber 2019 og gildir sam­an­burð­ur­inn fyrir sama tíma­bil í fyrra. Sum­ar­tíma­bilið sam­kvæmt skil­grein­ingu Alþjóða­sam­taka flug­fé­laga, IATA, nær frá lok mars ár hvert til loka októ­ber­mán­aðar.

Skúli segir viðræður ganga vel

Í frétt Frétta­blaðs­ins í dag var sagt frá því að Skúli Mogensen, for­stjóri og eig­andi WOW air, hefði skrifað í tölvu­pósti til starfs­manna sinna að við­ræð­urnar við Indigo Partners gangi vel og að ósannir orðrómar um WOW air verði áfram á kreiki.

„Veturinn hefur verið erf­iður en ég get full­vissað ykkur um að við­ræð­urnar við Indigo Partners ganga vel og sam­kvæmt áætlun eins og þið sem takið beinan þátt í þeim vitið. Það er full­kom­lega eðli­legt að flóknar við­ræður og stórar fjár­fest­ingar taki lengri tíma en búist var við,“ skrif­aði Skúli í tölvu­póst­inum.

„Á meðan við­ræð­unum stendur veit ég að þið fáið dag­lega spurn­ingar og það leikur eng­inn vafi á því að áfram verða ósannir orðrómar um WOW air á kreiki. En ég er sann­færður um að svo lengi sem við höldum áfram og ein­blínum á það, að bjóða lág verð, góða þjón­ustu og koma far­þegum tím­an­lega á áfanga­staði, muni okkur takast ætl­un­ar­verkið.“

Enn fremur kom fram í frétt­inni að Skúli hefði greint frá því í tölvu­póst­inu að rekst­ur­inn gangi vel á nýju ári. Til að mynda hefðu tekjur í jan­úar verið umfram áætlun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár