Hópurinn aldrei verið sterkari

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir að vissu­lega geti hags­munir ein­stakra félaga innan stétt­ar­fé­lag­anna verið mis­mun­andi í ein­hverjum til­fellum en að skör­unin sé mun meiri heldur en hitt.

Ragnar Þór Ingólfsson, Sólveig Anna Jónsdóttir og Vilhjálmur Birgisson.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, Sólveig Anna Jóns­dóttir og Vil­hjálmur Birg­is­son. Mynd: Samsett

Formenn VR, Eflingar og Verka­lýðs­fé­lags Akraness telja ekki vera „brest í blokk­inni“ eins og gefið er í skyn í frétt á for­síðu Frétta­blaðs­ins í dag. Í henni segir að ólíkir hags­munir félags­manna gætu gert verka­lýðs­fé­lögum í sam­floti erfitt að klára kjara­við­ræður saman.

Að mati heim­ild­ar­manna Frétta­blaðs­ins hafa verka­lýðs­fé­lögin of ólíka hags­muni til að geta klárað við­ræður við Rík­is­sátta­semj­ara í sam­floti. „Formenn Verka­lýðs­fé­lags Akraness og VR hafi sam­eig­in­lega hags­muni af því að ræða vexti, verð­trygg­ingu, vísi­tölu og hús­næð­is­mál en for­maður Eflingar þarf að semja um kjör hinna lægst laun­uðu. Formaður Verka­lýðs­fé­lags Grinda­víkur er sagður á svip­uðum nótum og for­maður Eflingar enda að semja fyrir fisk­verka­fólk á svip­uðum launa­kjörum og félags­menn Eflingar,“ segir í frétt Frétta­blaðs­ins.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir í sam­tali við Kjarnann þetta vera yfir­gengi­lega fram­sett. Hópurinn hafi aldrei verið sterk­ari og að þau hafi frekar verið að þétta í röðum sínum.

Mun veikja félögin og málstaðinn ef þau standa ekki þétt saman

„Vissu­lega geta hags­munir ein­stakra félaga verið mis­mun­andi í ein­hverjum til­fellum. En skör­unin er mun meiri heldur en hitt. Það er okkar allra hagur, hagur sam­fé­lags­ins, að hér geti fólk lifað af dag­vinnu­launum,“ segir Ragnar Þór og bætir því við að í kröfu­gerðum félag­anna komi þetta ber­lega í ljós þar sem eitt­hvað af brýnum hags­muna­málum sé að finna fyrir alla hópa.

„Eitt er þó víst að það mun veikja öll félögin og mál­stað okkar allra ef við stöndum ekki þétt saman í að lækka hér kostnað við að lifa og hækka launin sam­hliða því.

Það er sam­eig­in­legt verk­efni okkar allra og tökum við ábyrgð okkar í þeirri veg­ferð mjög alvar­lega,“ segir hann.

„Ódýrasti fjölmiðlaspuni ársins“

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, tekur í sama streng og Rangar Þór en hún segir að frétt Frétta­blaðs­ins eigi ekki við rök að styðj­ast.

Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Eflingar, gagn­rýnir for­síðu­frétt Frétta­blaðs­ins í Facebook-færslu í morgun og segir hana fjöl­miðla­spuna. „Ódýrasti fjöl­miðla­spuni árs­ins er þó ekki of ódýr fyrir for­síðu Frétta­blaðs­ins!“ segir í færsl­unni.

Í sam­tali við Kjarnann segir hann að engin breyt­ing hafi orðið á sam­stöðu verka­lýðs­fé­lag­anna og að sam­staðan sé ennþá mjög þétt. Aðspurður um ólíka hags­muni félags­mann­anna segir hann að það sé rétt að innan félag­anna sé ólík sam­setn­ing félags­manna en hann bendir á að félögin þrjú hafi eytt næstum því heilu ári í að stilla saman strengi félag­anna og sam­rým­ast um kröfur.

Réttlætanlegt að ákveðnar starfsstéttir beiti verkfalli

Í frétt Frétta­blaðs­ins segir að félags­menn verka­lýðs­fé­lag­anna gætu haft mjög ólíka afstöðu til verk­falls og telja heim­ildir blaðs­ins að ólík­legt sé að verk­fall verði sam­þykkt af félags­mönnum VR. Viðar segir að hann hafi ekki séð nein gögn um afstöðu félags­manna VR til verk­falla en vísar í könnun MMR frá því í des­em­ber í fyrra þar sem fram koma að nærri þrír af hverjum fjórum Íslend­ing um, 74 pró­sent, segja það rétt­læt­an­legt að ákveðnar starfs­stéttir beiti verk­falli á næstu miss­erum til að ýta eftir bættum starfs­kjörum. Rúmur meiri­hluti, 59 pró­sent, sagð­ist jafn­framt til­bú­inn að taka þátt í verk­falli til að bæta starfs­kjör sín og/eða ann­arra. Viðar segir það því ekki liggja fyrir að félags­menn Eflingar séu einir um að vilja fara í verk­fall, en í nýrri könnun Gallup kemur fram að tæp 80 pró­sent félags­manna Eflingar séu hlynntir því að fara í verk­fall til að knýja á launa­kröfur verka­lýðs­fé­lag­anna.

Standa og falla saman

Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness, segir í sam­tali við Frétta­blaðið það alger­lega af og frá að um bresti í sam­stöðu félag­anna fjög­urra sé að ræða. „Við erum mjög sam­hent í þess­ari vinnu og stöndum og föllum með henni saman.“ Hann segir fund for­setateymis ASÍ með stjórn­völdum á morgun geta haft úrslita­á­hrif á hvort samn­ingar náist en næsti fundur félag­anna fjög­urra hjá Rík­is­sátta­semj­ara verður á fimmtu­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár