Meirihluti reiðubúinn að fara í verkfall til að bæta kjör

Nærri þrír af hverjum fjórum Íslend­ingum segja það rétt­læt­an­legt að ákveðnar starfs­stéttir beiti verk­falli á næstu miss­erum til að ýta eftir bættum starfs­kjörum. Rúmur meiri­hluti, 59 pró­sent, seg­ist vera til­bú­inn að taka þátt í verk­falli í könnun MMR.

Nærri þrír af hverjum fjórum Íslend­ingum, 74 pró­sent, segja það rétt­læt­an­legt að ákveðnar starfs­stéttir beiti verk­falli á næstu miss­erum til að ýta eftir bættum starfs­kjörum. Rúmur meiri­hluti, 59 pró­sent, er til­bú­inn að taka þátt í verk­falli til að bæta starfs­kjör sín og/eða ann­arra. Þetta kemur fram í nið­ur­stöður nýrrar könn­unar MMR, sem fram­kvæmd var dag­ana 15.-21. nóv­em­ber 2018.

Stjórnendur og embættismenn mótfallnir verkfallsaðgerðum

Stjórn­endur og æðstu emb­ætt­is­menn reynd­ust lík­leg­astir allra starfs­stétta til að vera mót­fallin verk­falls­að­gerðum en ein­ungis 37 pró­sent þeirra sögðu þau rétt­læt­an­leg í kjara­bar­áttu starfs­stétta. Þá voru þeir tekju­hæstu 66 pró­sent ólík­legri en aðrir til að vera segja verk­föll rétt­læt­an­leg. Námsmenn reynd­ust hins vegar lík­leg­astir til að vera fylgj­andi eða 84 pró­sent.

Stuðn­ings­fólk Flokks fólks­ins, 97 pró­sent og Pírata, 96 pró­sent, reynd­ist lík­leg­ast til að segja verk­föll rétt­læt­an­leg miðað við aðstæður á vinnu­mark­aði. Stuðn­ings­fólk Sjálf­stæð­is­flokks 29 pró­sent og Mið­flokks 61 pró­sent reynd­ust ólík­leg­ust til að telja notkun verk­falla rétt­læt­an­lega í kjara­bar­áttu starfs­stétta.

Stuðningsfólks Sjálfstæðisflokksins ólíklegast til að segjast tilbúið í verkfall

Stuðn­ings­fólk Flokks fólks­ins 94 pró­sent var lík­leg­ast allra til að segj­ast til­búið að taka þátt í verk­falli til að bæta starfs­kjör sín og/eða ann­arra en stuðn­ings­fólk Sjálf­stæð­is­flokks 22 pró­sent, Við­reisnar 44 pró­sent og Fram­sókn­ar­flokks 49 pró­sent reynd­ist ólík­leg­ast.

Þegar litið er til stöðu á vinnu­mark­aði voru náms­menn, 72 pró­sent, bændur, sjó-, iðn-, véla og verka­fólk 66 pró­sent og þjón­ustu-, skrif­stofu­fólk og tæknar, 64 pró­sent lík­leg­astir allra til að segj­ast til­búnir þátt­töku í verk­falls­að­gerðum en stjórn­endur og æðstu emb­ætt­is­menn 21 pró­sent ólík­leg­astir.

Fjöldi þeirra sem kváð­ust reiðu­búin að fara í verk­fall til að bæta starfs­kjör sín og ann­arra fór minnk­andi með auk­inni menntun og heim­il­is­tekjum. Þá minnk­uðu líkur á að svar­endur voru til­búnir að ganga til verk­falls sam­hliða auk­inni menntun og tekjum.

Konur, landsbyggðin og unga fólkið jákvæðari gagnvart verkfalli

Jákvæðni gagnvart réttlætanleika verkfalla fór minnkandi með auknum aldri en 84 prósent svarenda á aldrinum 18-29 ára sagði aðstæður með þeim hætti að verkföll væru réttlætanleg, samanborið við 74 prósent þeirra 30-49 ára, 70 prósent þeirra 50-67 ára og 56 prósent þeirra 68 ára og eldri. Yngri svarendur voru líka líklegri til að segjast tilbúnir að taka þátt í verkfalli en þeir eldri . 

Svarendur á landsbyggðinni, 77 prósent, reyndust 7 prósent líklegri en íbúar höfuðborgarsvæðisins til að segjast telja verkföll réttlætanleg. Þeir reyndust einnig 10 prósent líklegri til að segjast tilbúnir að taka þátt í verkfalli heldur en þeir búsettir á höfuðborgarsvæðinu

Konur reyndust talsvert líklegri en karlar að segja aðstæður á vinnumarkaði vera með þeim hætti að réttlætanlegt sé fyrir ákveðnir starfsstéttir að beita verkfalli á næstu misserum til að ýta á bætt starfskjör. Konur voru einnig líklegri til að segjast tilbúnar að fara í verkafall til bæta starfskjör sín .

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verkalýðsbarátta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár