Tæp 80 prósent félagsmanna Eflingar hlynntir verkfalli

Mikill meiri­hluti félags­manna Eflingar styðja við kröfu­gerð félags­ins í kjara­samn­ingum en tæp­lega 80 pró­sent félags­manna telja hana sann­gjarna. Sama hlut­fall félags­manna seg­ist hlynnt því að fara í verk­fall til að knýja á launa­kröfur verka­lýðs­fé­lag­anna.

Tæplega 80 prósent félagsmanna stéttarfélagsins Eflingar telja kröfugerð félagsins í kjarasamningum sanngjarna, samkvæmt nýrri könnun Gallup. Sama hlutfall segist hlynnt því að fara í verkfall til að knýja fram launakröfur verkalýðsfélaganna. Í tilkynningu frá Eflingu segir að það sé ekki síst erlendur hluti vinnuaflsins sem að fylkir sér bak við launakröfurnar en samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar hefur stuðningur við kröfur og verkfallsaðgerðir auk væntinga um launahækkanir í kjölfar kjarasamninga tilhneigingu til að vera meiri meðal félaga af erlendum uppruna.

Mikil aukning á fjárhagsáhyggjum

[links]Könnun leiðir einnig í ljós mikla aukningu á fjárhagsáhyggjum meðal félagsmanna eða um 16 prósent aukningu frá launakönnun sem framkvæmd var í ágúst síðastliðnum. Meðal svarenda voru 47 prósent sem sögðust hafa miklar eða mjög miklar fjárhagsáhyggjur í kjarakönnun í ágúst 2018. Aftur á móti segjast talsvert fleiri eða 63 prósent hafa miklar eða mjög miklar áhyggjur í könnuninni sem framkvæmt var í janúar 2019. Það eru mestu fjárhagsáhyggjur sem hafa mælst í könnunum Eflingar frá hruni, samkvæmt félaginu. [adspot]

Spurningarnar voru lagðar fyrir fullvinnandi félagsmenn Eflingar með netkönnun á tímabilinu 19. til 26. janúar 2019. Haft var samband við 4758 félagsmenn og þar af svöruðu 1350. Niðurstöður voru vigtaðar út frá atvinnugrein og uppruna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár