Bjóða hækkun upp á 20.000 krónur á mánuði

Tilboð Samtaka atvinnu­lífs­ins til verka­lýðs­fé­lag­anna hljóðar upp á að laun upp að 600.000 krónum hækki um 20.000 krónur á mán­uði hvert ár samn­ings­ins.

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA.
Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri SA. Mynd: Aðsend mynd

Tilboð Samtaka atvinnu­lífs­ins til verka­lýðs­fé­lag­anna hljóðar upp á að laun upp að 600.000 krónum hækki um 20.000 krónur á mán­uði hvert ár samn­ings­ins. Gert er ráð fyrir þriggja ára samn­ingi og að laun umfram það hækki um 2,5 pró­sent. Þetta kemur fram í frétt RÚV í dag.

Í frétt­inni kemur jafn­framt fram að ekki sé gert ráð fyrir breyt­ingum á vinnu­tíma í til­boð­inu. Full­trúar Eflingar, VR, Verka­lýðs­fé­lags Akraness og Verka­lýðs­fé­lags Grinda­víkur ráði nú ráðum sínum og munu koma með gagntil­boð á samn­inga­fundi sem hófst fyrir hádegi í dag.

Efling leggur fram gagntilboð

Eins og kom fram í frétt Kjarnans í gær­kvöldi þá gerðu Sam­tök atvinnu­lífs­ins stétt­ar­fé­lögum til­boð í vik­unni um þriggja ára kjara­samn­inga að gefnum vissum for­send­um, en nú hefur samn­inga­nefnd Efl­ingar sam­þykkt að leggja fram gagntil­boð í dag. „Þar er komið til móts við kaup­hækk­un­ar­boð Sam­taka atvinnu­lífs­ins, með því skil­yrði að yfir­völd setji fram og standi við skatt­kerf­is­breyt­ing­ar,“ segir í frétt á vef Efl­ing­ar.

[adspot]

Stjórn Efl­ingar og samn­inga­nefnd sam­þykktu svo ályktun um skatta­stefnu, þar sem fyrsta skrefið fælist í þeim skatta­til­lögum sem Stefán Ólafs­son og Ind­riði H. Þor­láks­son hafa mótað í nýút­gef­inni skatta­skýrslu sinni.

Þar er lagt til að tekju­skattar á 90 pró­sent almenn­ings myndu lækka, en að tekju­hæstu fimm pró­sentin myndu borga meira. Stjórnin og samn­inga­nefndin krefj­ast þess að aðgerð­irnar sem skýrslan leggur til verði inn­leiddar „strax á næstu fjár­lög­um, og að skatt­byrði tekju­lægstu hópa verði með öllu aflétt eigi síðar en árið 2021.“

Fólk orðið óþolinmótt

Drífa Snædal, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands, fjallar um stöðu mála í kjara­við­ræð­unum í föstu­dag­spistli sínum. Þar segir hún að vikan hafi ein­kennst af við­ræðum við stjórn­völd og ótelj­andi öðru sam­tölum, jafnt form­legum sem óform­legum, um hvernig hægt yrði að ná sem bestum kjara­bótum í við­ræð­unum sem nú standa yfir. „Næsta vika ber von­andi í skauti sér skýr­ari mynd af stöð­unni og hvers er að vænta bæði frá stjórn­völdum og atvinnu­rek­endum. Fólk er auð­vitað orðið óþol­in­mótt og það er vel skilj­an­legt, ferlið hefur tekið lengri tíma en ætl­unin var en von­andi verður útkoman þeim mun betri og heild­ar­myndin fyllri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár