Efling leggur fram gagntilboð

Horfa til skatt­kerf­is­breyt­inga í anda þeirra sem Stefán Ólafsson og Indriði H. Þor­láks­son hafa lagt fram.

Í gær gerðu Samtök atvinnu­lífs­ins stétt­ar­fé­lögum til­boð um þriggja ára kjara­samn­inga að gefnum vissum for­sendum, en nú hefur samn­inga­nefnd Eflingar sam­þykkt að leggja fram gagntil­boð á morgun. „Þar er komið til móts við kaup­hækk­un­ar­boð Samtaka atvinnu­lífs­ins, með því skil­yrði að yfir­völd setji fram og standi við skatt­kerf­is­breyt­ingar,“ segir í frétt á vef Eflingar.

Stjórn Eflingar og samn­inga­nefnd sam­þykktu svo ályktun um skatta­stefnu, þar sem fyrsta skrefið fælist í þeim skatta­til­lögum sem Stefán Ólafsson og Indriði H. Þor­láks­son hafa mótað í nýút­gef­inni skatta­skýrslu sinni, að því er segir í frétt Eflingar.

Þar er lagt til að tekju­skattar á 90% almenn­ings myndu lækka, en að tekju­hæstu fimm pró­sentin myndu borga meira. Stjórnin og samn­inga­nefndin krefj­ast þess að aðgerð­irnar sem skýrslan leggur til verði inn­leiddar „strax á næstu fjár­lögum, og að skatt­byrði tekju­lægstu hópa verði með öllu aflétt eigi síðar en árið 2021.“

Ályktun stjórnar og samn­inga­nefndar er svohljóð­andi:

„Stjórn og samn­inga­nefnd Eflingar – stétt­ar­fé­lags þakka Stefáni Ólafs­syni og Indriða Þor­láks­syni fyrir afar vand­aða vinnu við smíði skýrsl­unnar „Sann­gjörn dreif­ing skatt­byrðar“ sem út kom í febr­úar 2019.

Ljóst er að til­lögur skýrsl­unnar víkja frá ítr­ustu kröfum í kröfu­gerð Eflingar á hendur rík­inu og fara í sumum atriðum aðrar leiðir en þar er lagt til. Engu að síður myndu til­lög­urnar, kæmu þær til fram­kvæmda, létta skatt­byrði lægstu launa um 40-60% pró­sent og færa skatt­kerfið veru­lega í rétt­læt­isátt. Til­lög­urnar eru fram­kvæm­an­legar á einu ári og í skýrsl­unni er að auki bent á fjölda leiða til að fjár­magna enn frek­ari lækkun skatt­byrði lægstu hópa.

Stjórn Eflingar – stétt­ar­fé­lags styður til­lögur skýrsl­unnar en með þeim fyr­ir­vara að þær séu ein­ungis fyrsta skref í átt­ina að því mark­miði að gera lægstu laun með öllu skatt­frjáls. Þess er kraf­ist að þær aðgerðir sem skýrslan leggur til verði inn­leiddar strax á næstu fjár­lögum, og að skatt­byrði tekju­lægstu hópa verði með öllu aflétt eigi síðar en árið 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár