ASÍ svarar gagnrýni fjármálaráðherra

Alþýðu­sam­band Íslands gagn­rýnir ummæli fjár­mála­ráð­herra þess efnis að til­lögur sam­bands­ins um breyt­ingar í skatt­kerf­inu muni leiða til þess að skatt­byrði hækki á með­al­tekjur og jað­ar­skattar auk­ist.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra, og Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Drífa Snædal, for­seti ASÍ. Mynd: Landsbankinn

Alþýðu­sam­band Íslands seg­ir það rangt hjá Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efn­hags­ráð­herra, að til­lög­ur sam­bands­ins í skatta­mál­um muni leiða til hækk­un­ar á skatt­byrði meðal­tekju­fólks. Sam­bandið sendi frá sér til­kynn­ingu í gær­kvöldi en þar segir að til­lögur sam­bands­ins geri þvert á móti ráð fyrir að skatt­byrði 95 pró­sent vinn­andi fólks lækki eða hald­ist óbreytt en tekju­hæstu 5 pró­sent munu hins vegar greiða hærri skatta en nú enda sé skatt­byrði þeirra tekju­hæstu sú lægsta á Norð­ur­lönd­unum.

Þetta köllum við að nýta tekjuskattkerfið sem raunverulegt jöfnunartæki

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, spurði Bjarna Bene­dikts­son um aðkoma stjórn­valda að kjara­samn­ingum á Alþingi í vik­unni. Morg­un­blaðið greindi frá því að Logi hafi meðal ann­ars bent Bjarna á að Sam­fylk­ing­in hefði talað fyr­ir hug­myndum ASÍ um fjöl­þrepa skatt­kerfi sem fjár­mála­ráð­herra hefði ekki tekið vel í. Bjarni svar­aði því og sagði að til­lögur ASÍ myndu auka jað­ar­skatta.

„Það sem mér finnst vera ákveðin hugs­ana­villa hjá mörg­um í tengsl­um við upp­bygg­ingu skatt­kerf­is­ins í heild er að fara ann­ars veg­ar fram á mjög hátt frí­tekju­mark en síðan lága skatta fyr­ir þá sem koma fyrst inn í skatt­kerfið í tekju­skatt­in­um. Menn verða að velja dá­lítið á milli þess­ara tveggja kosta. Ég hefði frek­ar verið tals­maður þess að vera með lægri frí­tekju­mörk og byrja með lægri pró­sent­ur en þessi fram­still­ing á mál­inu ger­ir það í raun og veru að verk­um að við þurf­um að hækka skatt­pró­sent­una of mikið á milli­tekju­fólkið,“ sagði Bjarni.

Alþýðu­sam­bandið segir í til­kynn­ingu sinni að þessi ummæli Bjarna bendi til þess að hann hafi ekki kynnt sér til­lög­urnar nægi­lega vel. „Fjár­mála­ráð­herra hefur haldið því fram með gagn­rýni sinni á til­lögur ASÍ um breyt­ingar á skatt­kerf­inu að þær muni leiða til þess að skatt­byrði hækki á með­al­tekjur og jað­ar­skattar auk­ist. Þessi ummæli ráð­herr­ans benda til þess að hann hafi ekki kynnt sér til­lög­urnar nægi­lega vel og því full ástæða til þess að leið­rétta þennan mis­skiln­ing.“[adspot]

Alþýðu­sam­bandið segir að með til­lögum þeirra, um breyt­ingar á skatt­kerf­inu, sé verið að reyna auka mest ráð­stöf­un­ar­tekjur þeirra sem hafi laun undir 500.000 krónum á mán­uði, skatt­byrði í efri milli­tekjum verður óbreytt en eykst hjá þeim allra tekju­hæstu. „Þetta köllum við að nýta tekju­skatts­kerfið sem raun­veru­legt jöfn­un­ar­tæki. Áhyggjur fjár­mála­ráð­herr­ans af auknum jað­ar­sköttum eru einnig óþarfar því til­lög­urnar gera bein­línis ráð fyrir því að jað­ar­skattar hinna tekju­lægri lækki.“ segir að lokum í til­kynn­ing­unni.

Vilja bæta stöðu hinna tekjulægri

[links]Alþýðu­sam­bandið hefur á und­an­förnum árum ítrekað gagn­rýnt þróun skatt- og til­færslu­kerf­anna og lagði sam­bandið nýlega fram rót­tækar til­lögur um breyt­ingar á skatt­kerfi Íslend­inga. Þar er meðal ann­ars lagt til að tekið verði upp þrepa­skipt skatt­kerfi með fjórum skatt­þrep­um, að fjórða þrepið verði hátekju­þrep, að skatt­leys­is­mörk verði hækkuð og látin fylgja launa­þróun og að breyt­ingin á skatt­kerf­inu auki ráð­stöf­un­ar­tekjur mest hjá þeim sem séu með laun undir 500 þús­und krón­ur. Þá fela til­lög­urnar í sér að end­ur­reisa þurfi hús­næð­is­stuðn­ings­kerfin og að koma þurfi í veg fyrir að sveiflur á mark­aði hafi áhrif á hús­næð­is­stuðn­ing, og þar með afkomu launa­fólks.

Í til­kynn­ingu frá sam­band­inu segir að ástæðan sé ein­föld, þær breyt­ingar sem gerðar hafi verið hafa ekki miðað að því að bæta stöðu hinna tekju­lægri. Alþýðu­sam­bandið vísar þar í skýrslu Hag­deildar sem gefin var út haustið 2017 þar sem skatt­byrði launa­fólks rakin frá árinu 1998. Nið­ur­staða skýrsl­unnar var aukin skatt­byrði launa­fólks á síð­ustu ára­tugum og hefur þró­unin komið verst niður á tekju­lægri hópum sökum þró­unar skatt­kerfis og veik­ingar til­færslu­kerf­anna. Tillögur ASÍ í skatta­málum er því miðuð að því að leið­rétta þessa þróun með „ein­földum aðgerðum“, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár