ASÍ vill fjögur skattþrep og hátekjuskatt

ASÍ leggur til að hið opin­bera horfi til þess að hækka fjár­magnstekju­skatt, taki upp auð­legð­ar­skatt og auki skatta­eft­ir­lit til að fjár­magna til­lögur sínar um breytt skatt­kerfi.

Drífa Snædal er forseti ASÍ.
Drífa Snædal er for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Efnahags-, skatta- og atvinnu­mála­nefnd Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) lagði í dag fram rót­tækar til­lögur um breyt­ingar á skatt­kerfi Íslend­inga sem mið­stjórn sam­bands­ins hefur sam­þykkt.

Þar er meðal ann­ars lagt til að tekið verði upp þrepa­skipt skatt­kerfi með fjórum skatt­þrepum, að fjórða þrepið verði hátekju­þrep, að skatt­leys­is­mörk verði hækkuð og látin fylgja launa­þróun og að breyt­ingin á skatt­kerf­inu auki ráð­stöf­un­ar­tekjur mest hjá þeim sem séu með laun undir 500 þús­und krónur.

Þá fela til­lög­urnar í sér að end­ur­reisa þurfi hús­næð­is­stuðn­ings­kerfin og að koma þurfi í veg fyrir að sveiflur á mark­aði hafi áhrif á hús­næð­is­stuðn­ing, og þar með afkomu launa­fólks.

ASÍ vill einnig að barna­bætur verði látnar ná til þorra barna­fjöl­skyldna, að degið verði veru­lega úr tekju­skerð­ingum við úthlutun þeirra og að tekju­skerð­ing­ar­mörk verði hækkuð og látin fylgja launa­þróun.

ASÍ leggur til að hið opin­berra horfi til þess að hækka fjár­magnstekju­skatt, taki upp auð­legð­ar­skatt og auki skatta­eft­ir­lit til að fjár­magna til­lög­urnar.

Í til­kynn­ingu frá ASÍ segir að rann­sókn hag­deildar ASÍ frá 2017 sýni að skatt­byrði hinna tekju­lægstu hefur hækkað mest á und­an­förnum árum og dregið hafi úr jöfn­un­ar­hlut­verki skatt­kerf­is­ins. „Munar þar mestu að skatt­leys­is­mörk hafa ekki fylgt launa­þróun og vaxta- og barn­bóta­kerfin hafa mark­visst verið veikt og eru nú í skötu­líki miðað við það sem áður var.

Hús­næð­is­stuðn­ingur hins opin­bera hefur þannig rýrnað á sama tíma fast­eigna- og leigu­verð hefur rokið upp. Á síð­ustu árum hefur barna­fjöl­skyldum sem fá stuðn­ing í gegnum barna­bóta­kerfið fækkað mikið og bæt­urnar sem hlut­fall af launum lækkað veru­lega. Stuðn­ings­kerfin nýt­ast nú aðeins fámennum hópi mjög tekju­lágra ein­stak­linga. Þau eru ekki lengur það tekju­jöfn­un­ar­tæki sem lagt var upp með vegna vax­andi tekju­skerð­inga. Þessu vill Alþýðu­sam­bandið breyta og leggur því fram hug­myndir um breyt­ingar á skatt­kerf­inu sem auka jöfnuð og ráð­stöf­un­ar­tekjur megin þorra launa­fólks.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár