Segir endurkomu Klausturmanna ekki boðlega

Sitjandi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir að end­ur­koma Klaust­urs­manna á Alþingi geri þing­mönnum og ráð­herrum erfitt að sinna starfi sínu.

Jóhanna Vigdís Guð­munds­dóttir, vara­þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sem situr nú á þingi í fjar­veru Ágústar Ólafs Ágústs­sonar, segir að þing­menn og ráð­herrar hafi orðið fyrir því í morgun að hefja þing­fund með fyr­ir­sát Klaust­urs­manna, sem hafi til­kynnt þing­heimi um end­ur­komu sína í fjöl­miðlun í morgun. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu sem hún hefur birt á Facebook.

Klaust­urs­menn­irnir sem hún talar um eru Gunnar Bragi Sveins­son, vara­for­maður Mið­flokks­ins, og Bergþór Ólason, þing­maður sama flokks, sem snéru aftur á þing í dag.

Þar segir Jóhanna Vigdís að fyr­ir­sátin sýni enga iðrun í garð fórn­ar­lamba þeirra, sem þurftu sum hver að sitja þarna í þing­sal undir nær­veru þeirra, og þaðan af síður sjálf­skiln­ing téðra Klaust­ur­manna.„Ég hef starfað á ýmsum vinnu­stöðum þar sem vinnu­staða­menn­ing hefur verið með ýmsum hætti, en það and­rúms­loft sem er á Alþingi í dag er eitt­hvað sem ég hef aldrei kynnst áður. End­ur­koma Klaust­ur­manna, án þess að nokkrum hafi verið til­kynnt um það fyr­ir­fram, gerir þing­mönnum og ráð­herrum erfitt um að sinna starfi sínu. Þetta er ekki boð­legt.“

Jóhanna Vigdís tók sæti Ágústar Ólafs á þingi 15. jan­úar síð­ast­lið­inn. Ágúst Ólafur er í leyfi rá þing­störfum eftir að hafa verið áminntur af trún­að­ar­nefnd flokks­ins vegna kyn­ferð­is­legrar áreitni gegn blaða­manni. Sam­kvæmt til­kynn­ingu sem Ágúst Ólafur sendi frá sér 7. des­em­ber ætl­aði hann að taka sér tveggja mán­aða leyfi.

Gunnar Bragi greindi frá end­ur­komu sinni í til­kynn­ingu til fjöl­miðla í morgun. Hann segir að stundum sé ákvarð­anir teknar fyrir menn. „Fremur óvænt – en samt ekki - blasir svarið við því hvenær rétt sé að snúa til baka. Fyrstu dagar þing­funda á nýju ári, og fram­ganga for­seta Alþingis að und­an­förnu, er með þeim hætti að annað er óhjá­kvæmi­legt en að nýta sér allan rétt til þess að vera inni á þeim leik­velli þar sem að mér er sótt og svara fyrir mig á þeim vett­vangi en ekki utan hans. Þess vegna mæti ég á nýjan leik til starfa minna á Alþingi í dag.“

Berg­þór Óla­­son greindi einnig frá því í morgun að hann ætli að halda áfram að starfa sem þing­­mað­­ur. Það kom fram í grein sem hann skrif­aði í Morg­un­­blaðið í dag.

Þar fór hann yfir Klaust­­ur­­málið svo­­kall­aða og eft­ir­­mála þess. Berg­þór sagði margt hafa komið illi­­lega við sig í mál­inu. „Mér fannst vond þróun að legið væri á hleri þegar annað fólk talar saman á veit­inga­hús­­um. Mér fannst vont að fjöl­miðlar teldu sjálf­­sagt að birta slíkt drykkju­raus opin­ber­­lega og eig­in­­lega enn verra hversu margir voru ánægðir með hvorttveggja. En verst af öllu fannst mér að heyra í sjálfum mér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár