Embætti forstjóra Barnaverndarstofu laust til umsóknar

Félags­mála­ráðu­neytið aug­lýsir starf for­stjóra barna­vernd­ar­stofu laust til umsóknar. Bragi Guð­brands­son lét af starfi for­stjóra í febr­úar í fyrra eftir að hafa tekið sæti í Barna­rétt­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna fyr­ir hönd Íslands.

Starf for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu hefur verið aug­lýst laust til umsóknar á vef félags­mála­ráðu­neyt­is­ins. For­stjóri Barna­vernd­ar­stofu stýrir starfi stofn­un­ar­innar og heyrir undir félags- og barna­mála­ráð­herra. Bragi Guð­brands­son lét af starfi for­stjóra í febr­úar í fyrra eftir að hafa tekið sæti í Barna­rétt­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna fyr­ir Íslands hönd og tekið að sér sér­verk­efni á vegum vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Forstjóri skipaður til fimm ára í senn

Heiða Björg Pálma­dótt­ir, hefur gegnt starfi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu tíma­bundið eftir að Bragi fór í leyfi. Félags- og barna­mála­ráð­herra skip­ar for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu til fimm ára í senn en umsókn­ar­frestur er til 28. jan­úar 2018.

[links]Í til­kynn­ingu frá Félags­mála­ráðu­neyt­inu segir að ráðu­neytið vinni nú að heild­ar­end­ur­skoðun á barna­vernd­ar­lög­gjöf og fram­kvæmd þjón­ust­unnar við börn og sam­kvæmt til­kynn­ing­unni geta breyt­ingar orðið í kjöl­farið sem hafa áhrif á starf­semi Barna­vernd­ar­stofu.

Í lok febr­úar á síð­asta ári til­kynnti ráðu­neytið að eft­ir­lit með öllu barna­vernd­ar­starfi í land­inu yrði end­ur­skoðað og ráð­ist yrði í heild­ar­end­ur­skoðun barna­vernd­ar­laga. Þá verði settar skýrar form­kröfur um sam­skipta­hætti stjórn­valda sem gegna hlut­verki á sviði barna­vernd­ar. Í til­kynn­ing­unni um frum­varpið kom fram að fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar á sviði barna­verndar séu að hluta til liður í við­brögðum ráðu­neyt­is­ins til að end­ur­heimta traust í kjöl­far kvart­ana frá for­menn barna­vernd­ar­nefnd­anna vegna sam­skipta við Barna­vernd­ar­stofu og for­stjóra hennar en þeim sé einnig ætlað að bæta stjórn­sýslu mála­flokks­ins og stuðla að þróun nýrra úrræða í barna­vernd. [adspot]

Barnaverndarstofa vinnur að samhæfingu barnaverndarstarfs í landinu

Hlutverk Barna­vernd­ar­stofu er að vinna að sam­hæf­ingu og efl­ingu barna­vernd­ar­starfs í land­inu og er félags­mála­ráð­herra til ráð­gjafar um stefnu­mótun í mála­flokknum, sam­kvæmt vef félags­mála­ráðu­neyt­is­ins. Jafn­framt fer Barna­vernd­ar­stofa með leið­bein­ingar um túlkun og fram­kvæmd barna­vernd­ar­laga og fræðslu og ráð­gjöf fyrir barna­vernd­ar­nefndir í land­inu. Enn fremur hefur Barna­vernd­ar­stofa eft­ir­lit með störfum barna­vernd­ar­nefnda. 

Barna­vernd­ar­stofa ann­ast meðal ann­ars leyf­is­veit­ingar til fóst­ur­for­eldra, tekur ákvarð­anir og veitir barna­vernd­ar­nefndum lið­sinni í fóst­ur­málum, fer með yfir­stjórn heim­ila og stofn­ana sem rík­inu ber að sjá til að séu til­tæk og hlut­ast til um að slík heim­ili og stofn­anir verði sett á fót. Stofan hefur yfir­um­sjón með vistun barna á þessum heim­ilum og stofn­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár