Bragi kjörinn í barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna

Bragi Guð­brands­son hefur verið kjör­inn í nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi barns­ins til næstu fjög­urra ára.

Bragi Guðbrandsson
Bragi Guð­brands­son Mynd: Aðsend

Bragi Guð­brands­son var í dag kjör­inn í nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi barns­ins til næstu fjög­urra ára. Atkvæða­greiðslan fór fram á fundi aðild­ar­ríkja Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna sem hald­inn var í New York í dag.

Þetta kemur fram í frétt utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Samkvæmt frétt­inni fékk Bragi mjög góða kosn­ingu eða 155 atkvæði af 195. Átján fram­bjóð­endur sótt­ust eftir níu sætum í nefnd­inni. Bragi, ásamt full­trúa Samóa, fékk næst­flest atkvæði allra en full­trúi Marokkó hlaut 160 atkvæði.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra segir við til­efnið að rétt­indi barna séu eitt af þeim mál­efnum sem Ísland talar reglu­lega fyrir á vett­vangi Sam­ein­uðu þjóð­anna og í þess­ari nið­ur­stöðu felist því mikil við­ur­kenn­ing á frammi­stöðu Íslands á þessu sviði. „Bragi Guð­brands­son er sömu­leiðis vel að þessu kom­inn enda hefur hann menntun, sér­þekk­ingu og ára­tuga reynslu, bæði á Íslandi og í alþjóða­starfi, í þeim mála­flokki sem barna­rétt­ar­nefndin fæst við,“ segir hann.

[links]Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra fagnar úrslitum atkvæða­greiðsl­unnar. Hann seg­ist ánægður með þessa nið­ur­stöðu. „Ísland hefur nú fengið rödd á þessum mik­il­væga vett­vangi þar sem talað er fyrir rétt­indum barna og bættri stöðu þeirra á grund­velli Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. Áratuga reynsla og þekk­ing Braga Guð­brands­sonar á mál­efnum barna og þátt­taka hans í alþjóð­legu sam­starfi á þessu sviði mun án efa nýt­ast vel í störfum barna­rétt­ar­nefnd­ar­innar.“

Nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi barns­ins hefur aðsetur í Genf í Sviss. Verkefni hennar er að fylgj­ast með fram­kvæmd samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi barns­ins og bók­ana við hann. Nefndin er skipuð átján sjálf­stæðum, óháðum sér­fræð­ingum, sem kosnir eru til fjög­urra ára í senn. Aðild­ar­ríkin kjósa níu sér­fræð­inga í júní annað hvert ár.

Fyrr á þessu ári sam­þykkti rík­is­stjórnin til­lögu félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra um fram­boð Braga í nefnd­ina og var utan­rík­is­ráðu­neyt­inu falið að und­ir­búa fram­boðið. Fasta­nefnd Íslands í New York hefur borið hit­ann og þung­ann af þeirri vinnu, segir í frétt ráðu­neyt­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár