Velferðarráðuneytið brást í málum Braga

Samkvæmt nið­ur­stöðu óháðrar úttektar á máls­með­ferð vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins á málum for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu sam­rýmd­ist hún ekki grund­vall­ar­reglum stjórn­sýslu­rétt­ar­ins.

Kjartan Bjarni Björgvinsson og Bragi Guðbrandsson.
Kjartan Bjarni Björg­vins­son og Bragi Guð­brands­son. Mynd: Samsett.

Nið­ur­staða óháðrar úttektar á máls­með­ferð og efn­is­legri athugun vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins í kjöl­far kvart­ana barna­vernd­ar­nefnda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna Barna­vernd­ar­stofu og for­stjóra hennar liggur nú fyrir en hún var kynnt í dag á Þjóð­minja­safn­inu. 

[links]Í nið­ur­stöðum úttekt­ar­innar, sem kynnt var rík­is­stjórn­inni í dag, voru gerðar athuga­semdir við að vel­ferð­ar­ráðu­neytið hafi full­yrt í bréfi sínu til Barna­vernd­ar­stofu og for­stjóra hennar þann 27. febr­úar síð­ast­lið­inn að for­stjór­inn hafi farið út fyrir verk­svið sitt með því að beina mál­inu ekki til Embætti sýslu­manns á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Kjartan Bjarni Björg­vins­son hér­aðs­dóm­ari fram­kvæmdi úttekt­ina með lið­sinni Krist­ínar Bene­dikts­dóttur, dós­ent við laga­deild Háskóla Íslands. Í henni var farið yfir fyr­ir­liggj­andi gögn máls­ins og máls­með­ferð við­kom­andi stjórn­valda, það er þeirra barna­vernd­ar­nefnda sem tengj­ast við­kom­andi mál­um, Barna­vernd­ar­stofu og vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is.

Þá eru einnig gerðar athuga­semdir við það að í úttekt­inni hafi ráðu­neytið kom­ist að nið­ur­stöðu í máli for­stjór­ans án þess að vera gef­inn kostur á að kynna sér gögnin sem nið­ur­staðan var byggð á og veitt tæki­færi til að tjá sig um þau.

Í úttekt­inni er jafn­framt lýst efa­semdum um að ráðu­neytið hafi haft full­nægj­andi stoð um aðfinnslu um for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu.

Máls­með­ferð ráðu­neyt­is­ins sam­rýmd­ist ekki grund­vall­ar­reglum stjórn­sýslu­rétt­ar­ins, sam­kvæmt úttekt­inni. Að því er snertir við­brögð ráðu­neyt­is­ins við þeim kvört­unum sem barna­vernd­ar­nefndir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu komu á fram­færi í nóv­em­ber 2017 um starfs­hætti Barna­vernd­ar­stofu og fram­göngu starfs­fólks stofn­un­ar­innar er það nið­ur­staða úttekt­ar­innar að vel­ferð­ar­ráðu­neytið hafi ekki gert full­nægj­andi ráð­staf­anir til að upp­lýsa hvað væri hæft í þeim ávirð­ingum sem bornar voru á barna­vernd­ar­stofu og starfs­fólk hennar.

„Þetta lét ráðu­neytið hjá líða þótt það hefði sjálft lýst þeirri afstöðu í bréfi í nóv­em­ber síð­ast­liðnum að athuga­semdir barna­vern­ar­nefnd­anna þriggja gæfu til kynna að veru­leg vanda­mál hefðu skap­ast í barna­vernd­ar­starfi á Íslandi og að for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu kynni að hafa brotið af sér í starfi,“ sagði Kjartan í kynn­ing­unni.

Samkvæmt nið­ur­stöðum þess­arar úttektar voru þær ávirð­ingar sem settar voru fram og beindust að störfum for­stjór­ans þess eðlis að ráðu­neyt­inu bar að afla frek­ari upp­lýs­ingar um þær til þess að geta tekið afstöðu til þess hvort til­efni væri til að gera frek­ari athugun á störfum Barna­vernd­ar­stofu.

Tekið er fram að nið­ur­stöð­urnar tak­markast við það atvik sem þar er lýst sam­kvæmt gögnum ráðu­neyt­is­ins. Ekki er í úttekt­inni tekin afstaða til sam­skipta ráð­herra við Alþingi, hvernig ráð­herra sé rétt að haga afgreiðslu um end­ur­upp­töku máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár