Ásmundur Einar: Bragi braut ekki af sér

Félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra segir að fyrr­ver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu hafi ekki gerst brot­legur í starfi.

Ásmundur Einar Daðason félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra segir að nið­ur­stöður rann­sóknar vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins á störfum for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu séu þær að Bragi Guð­brands­son fyrr­ver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu hafi ekki gerst brot­legur í starfi með nokkrum hætti. Aftur á móti hafi verið álita­mál sem þurfi að fara ofan í.

Þetta kom fram í svari hans við óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn Halldóru Mogensen þing­manns Pírata á Alþingi í dag.

Hann segir jafn­framt að staða Braga sé sterk eftir 20 ára reynslu í starfi.

Þor­steinn Víglunds­son þing­maður Við­reisnar segir í pontu Alþingis ásak­an­irnar á hendur Braga vera af alvar­legum toga og að þær hafi ekki verið settar fram af léttúð. Barna­vernd­ar­nefnd hafi farið fram á að for­stjór­inn yrði met­inn van­hæfur og annar feng­inn í hans stað.

Ásmundur Einar ítrekar að Barna­vernd­ar­stofa og Bragi hafi ekki brotið af sér en að ljóst þyki að ráð­ast þurfi í ákveðnar breyt­ingar. Hann sé sam­mála þess­ari nið­ur­stöðu og segir hann enn­fremur að Bragi sé fram­bæri­legur fram­bjóð­andi fyrir hönd Íslands.

Þor­steinn sagði á Face­book-síðu sinni í gær að Ásmundur Einar hljóti að opin­bera nið­ur­stöðu á rann­sókn vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins vegna kvart­ana barna­vernd­ar­nefnda höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins yfir störfum Braga.

Síð­ast­lið­inn föstu­dag sam­þykkti rík­is­stjórnin að sækj­ast eftir sæti fyrir Íslands hönd í Barna­rétt­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna. Bragi Guð­brands­son verður full­trúi Íslands í kjöri til nefnd­ar­inn­ar en í henni sitja 18 sér­fræð­ingar og hafa þeir það hlut­verk að fylgj­ast með Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Ásmundur Einar veitti Braga leyfi til eins árs frá starfi sínu sem for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu. „Staða Braga sem fram­bjóð­anda Íslands er talin sterk vegna ára­tuga reynslu hans af mála­flokknum og þátt­töku í alþjóð­legu sam­starfi á þessu svið­i,“ segir í til­kynn­ingu frá ráðu­neyti Ásmundar Ein­ar­s.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár