WOW air fellt niður flugferðir til minnst sex flugvalla

WOW air hefur að und­an­förnu til­kynnt far­þegum að félagið hafi neyðst til að fella niður ákveðnar flug­ferðir. Neyt­enda­sam­tökin benda far­þegum á að þeir ættu að geta valið um end­ur­greiðslu á flug­miða eða óskað eftir því flug­fé­lagið útvegi þeim nýtt flug.

WOW air hefur þurft að fella niður flug­ferðir til minnst sex flug­valla. Félagið segir að end­ur­skipu­lagn­ing leiða­kerfis og fækkun í flota skýri þessar nið­ur­fell­ingar. Þetta á við staði á borð við Los Angelels, San Francisco, Nýju Delí og Chicago en einnig hafa ein­staka flug til Kaup­manna­hafnar, Mílanó og London verið felld niður. Ekki er vitað hversu margar ferðir hafa verið felldar niður í heild­ina. Frá þessu var greint í frétta­tíma RÚV í gær.

Endurskipulagning í rekstri

[links] WOW air segir að reynst hafi flug­fé­lag­inu nauð­syn­legt að fella niður flug í ljósi end­ur­skipu­lagn­ingar á leiða­kerfi félags­ins og fækk­unar í flota. Flug­fé­lagið til­kynnti um mik­inn sam­drátt í rekstri flug­fé­lags­ins um miðjan des­em­ber á síð­asta ári. Fjölda starfs­manna var sagt upp, flug­vélum félags­ins var fækkað úr tutt­ugu og fjórum í ell­efu, flug­tímar WOW air á Gatwick voru seldir og til­kynnt var að áfanga­stöðum yrði fækkað. Um svipað leiti, þann 14. des­em­ber var til­kynnt að banda­ríska fjár­fest­inga­fé­lagið Indigo Partners gæti fjár­fest í félag­inu upp á allt að 75 millj­ónir dala, um 9,4 millj­arða króna.[adspot]

Farþegar ættu að geta óskað eftir því að flugfélagið útvegi þeim nýtt flug á lokaáfangastað

Í svari WOW air við fyr­ir­spurn frétta­stofu RÚV segir að öllum far­þegum flug­fé­lags­ins sé boðið að fá end­ur­greitt eða velja nýjan áfanga­stað. Á vef Neyt­enda­sam­tak­anna kemur aftur á móti fram að far­þegar ættu að geta valið um end­ur­greiðslu eða óska eftir því að flug­fé­lagið útvegi þeim nýtt flug á loka­á­fanga­stað.

Í frétt á vef Neyt­enda­sam­tak­anna í gær segir að sam­tök­unum hafi borist nokkur fjöldi fyr­ir­spurna vegna aflýs­ingar á Ind­lands­flugi og neyt­endum er því bent á reglu­gerð um rétt­indi flug­far­þega. Fram kemur að far­þegar hafi kvartað undan því að þeim hafi ein­göngu verið boðin end­ur­greiðsla á far­miðum, ýmist í formi pen­inga eða gjafa­bréfs.

Samtökin benda á að rétt­indi flug­far­þega veiti far­þegum rétt á þremur val­kostum þegar flugi er aflýst. Kost­irnir eru í fyrsta lagi að fá end­ur­greiðslu á ferð­inni, í öðru lagi að fá flug­ferð­inni breytt til þess að kom­ast á áfanga­stað eins fljótt og unnt er eða að breyta flug­leið þannig að far­þeg­inn kom­ist á áfanga­stað síðar meir við fyrsta hent­ug­leika. Farþegar hafa þannig val um hvort þeir vilja fá end­ur­greiðslu á flug­mið­anum eða óska eftir því að flug­fé­lagið útvegi þeim nýtt flug til loka­á­kvörð­un­ar­staðar.

Eftir tvær vikur leggur WOW air niður flug sitt til Nýju Delí

Wow Air til­kynnti í maí á síð­asta ári að flug­fé­lagið hæfi beint áætl­un­ar­flug til Indlands í des­em­ber. Fyrir mán­uði síðan fór síðan breið­þota WOW air í sína fyrstu ferð til Nýju Delí. Um borð var Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra sem hélt utan í til­efni af því að nú væru komnar á flug­sam­göngur á milli Íslands og Indlands. Stuttu seinna var síðan til­kynnt að flug­leiðin til Indlands yrði lögð niður 20. jan­úar næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár