Lumar þú á Munch málverki

Á und­an­förnum árum hafa tugir lista­verka hins heims­fræga norska mynd­list­ar­manns Edvards Munch horfið úr söfnum í Ósló. Enginn veit hvar þessi verk eru nú nið­ur­komin en sum verk­anna eru metin á millj­óna­tugi.

Sjálfsmynd, eitt síðasta verk Edvard Munch.
Sjálfs­mynd, eitt síð­asta verk Edvard Munch.

Á und­an­förnum árum hafa tugir lista­verka hins heims­fræga norska mynd­list­ar­manns Edvards Munch horfið úr söfnum hans í Ósló. Enginn veit hvar þessi verk eru nú nið­ur­komin.

Þegar minnst er á heims­þekkta Norðmenn koma nokkur nöfn upp í hug­ann. Leik­rita­skáldið Henrik Ibsen, tón­skáldið Edvard Grieg, rit­höf­und­ur­inn Knut Hamsun, land­könn­uð­ur­inn Thor Heyer­dahl, pólfar­inn Roald Amundsen land­könn­uð­ur­inn Fridtjof Nansen og stjórn­mála­mað­ur­inn Vidkun Quisling. Fleiri mætti tína til, en hér hefur ekki verið nefndur sá sem kannski er þekkt­astur allra Norð­manna fyrr og síðar: mynd­list­ar­mað­ur­inn Edvard Munch.

Edvard Munch (12. des­em­ber 1863 - 23. jan­úar 1944) fædd­ist og ólst upp á bóndabæ við þorpið Ådals­bruk á Heið­mörku. For­eldrar hans, þau Laura Cathrine Bjølstad og Christian Munch gengu í hjóna­band árið 1861, hún var þá 22 ára en hann 44 ára. Christian Munch var her­læknir og vegna atvinnu hans flutti fjöl­skyldan til Christiania (sem síðar fékk nafnið Krist­i­ania og enn síðar Ósló) þegar Edvard var árs gam­all. Eins og margir í fjöl­skyldu Lauru var hún berkla­veik og lést árið 1868, þegar son­ur­inn Edvard var fimm ára, þá höfðu hjónin eign­ast fimm börn. Karen Bjølstad, systir Lauru, varð ráðs­kona á heim­ili mágs síns og börnin litu á hana sem móður sína.

Snemma beygist krókurinn

Edvard byrj­aði mjög ungur að teikna. Í end­ur­minn­ingum sínum minn­ist hann þess að hafa legið á gólf­inu með kola­mola og teiknað. Faðirinn Christian og frænkan Karen hvöttu börnin til að teikna þegar fjöl­skyldan sat saman á kvöldin og Christian læknir las upp­hátt og sagði sögur. Munch fjöl­skyldan flutti nokkrum sinnum milli bæj­ar­hluta á næstu árum og bjó við þröngan kost enda lækn­is­launin lág. Edvard var heilsu­veill og var lang­tímum saman fjar­ver­andi úr skól­anum. Talsvert er til af teikn­ingum Edvards frá þessum árum, við­fangs­efnin það sem fyrir augu bar inn­an­dyra, hús­gögn, verk­færi, bækur o.fl þess háttar. Fimmtán ára gam­all tók Edvard inn­töku­próf í tækni­skóla og sett­ist í verk­fræði­deild­ina. Dvölin þar varð aðeins eitt ár, veik­indin tóku sinn toll, en mestu réði þó að Edvard hafði ekki áhuga á nám­inu, föður hans til mik­illa von­brigða. Í nóv­em­ber 1880 skrif­aði Edvard í dag­bók sína „ég hef skráð mig úr skól­anum. Hef nefni­lega ákveðið að verða mál­ari.“ Honum var hins­vegar ljóst að nauð­syn­legt væri að afla sér mennt­unar á því sviði, var fyrst einn vetur í kvöld­skóla (Tegneskolen, Kon­ung­legi lista- og hönn­un­ar­skól­inn) en síðan í fullu námi við sama skóla. Aðal kenn­arar hans voru mynd­höggv­ar­inn Julius Midd­elt­hun og list­málar­inn Christian Krogh, báðir í fremstu röð norskra lista­manna á sinni tíð.

Edvard vakti strax athygli fyrir óvenju­lega færni og í gögnum skól­ans má sjá að hann hefur verið tal­inn skara framúr.

Áhrifavaldarnir

Árið 1883 sýndi Edvard Munch í fyrsta sinn opin­ber­lega (Industri- og kunstut­still­ingen) og fékk góða dóma. Hér verður ekki reynt að rekja lífs­hlaup Munch en tvær ferðir hans til Parísar árin 1885 og 1889 mörk­uðu tíma­mót í lífi hans. Í París kynnt­ist hann verkum Vincent van Gogh og Paul Gaugain. Síðar varð Munch fyrir miklum áhrifum af verkum Ágúst Strind­bergs. „Mér varð ljóst að mann­eskj­unni er ætlað að lifa í ein­mana­leika og ang­ist.“ Í þeim fjöl­mörgu bókum sem skrif­aðar hafa verið um Munch og líf hans kemur alls staðar fram að þessir tveir þættir, ein­mana­leiki og ang­ist, séu grunn­tónn­inn í list hans. Munch hafi alla ævi lifað í eins konar sál­ar­kreppu. Hann var alla tíð heilsu­veill lík­am­lega, og ekki síður and­lega og dvaldi marg­sinnis, um lengri og skemmri tíma á geð­sjúkra­húsum. Hann veikt­ist alvar­lega árið 1919, af spænsku veik­inni og árið 1930 sprakk æð í hægra auga hans og minnstu mun­aði að hann missti sjón­ina, en sjón hans á vinstra auga var alla ævi mjög tak­mörkuð.

Heimsfrægð

Frá 1885 og fram undir 1930 ferð­að­ist Munch mikið, dvaldi lang­dvölum í Þýska­landi og París. Sýndi margoft í Frakk­landi og Þýska­landi, Danmörku, Noregi, Ítalíu og víðar. Sjálfur taldi hann sýn­ingu sína í Prag árið 1905 þá merk­ustu á ferl­inum.

Um alda­mótin 1900 var Munch orð­inn heims­frægur fyrir list sína. Málverk og graf­ík­myndir hans urðu mörgum lista­mönnum, sem aðhyllt­ust expressioníska túlkun, fyr­ir­mynd. Þótt hann sé þekkt­astur fyrir mál­verk og graf­ík­myndir gerði hann einnig bóka­skreyt­ingar og vegg­myndir, m.a. í opin­berum bygg­ingum.

Eins og áður var nefnt sýndi Munch oft í Þýska­landi. Þýsku nas­ist­arnir voru ekki hrifnir af verkum Munch, seldu mörg verk sem voru í opin­berri eigu í Þýska­landi og vildu jafn­vel eyði­leggja verk hans. Lang­flestum verkum Munch var þó forðað, sumum var komið úr landi og önnur falin.

Ánafnaði Ósló borg verk sín

Þótt Munch hafi ferð­ast mikið og dvalið lang­dvölum erlendis var Noregur þó ætíð hans heima­höfn. Árið 1916 keypti hann lít­inn búgarð, Ekely, í útjaðri Ósló og bjó þar til ævi­loka 23. jan­úar 1944.

Nokkru fyrir dauða sinn ánafn­aði Munch Ósló borg verk sín og eigur, ekki þó búgarð­inn, Ósló borg keypti hann síðar. Í safni því sem Mubch ánafn­aði borg­inni voru 1100 mál­verk, 4500 vatns­lita- og krít­armyndir, 20.000 graf­íkverk og teikn­ingar, 6 mynda­styttur, stórt bóka- og bréfa­safn og ýmis­legt fleira.

Stenersen safnið og stúdentagarðarnir

Einn af vinum Munch var Rolf E. Sten­er­sen (1899- 1978). Sten­er­sen var á yngri árum marg­faldur Nor­egs­meist­ari í sprett­hlaupum, skrif­aði síðar all­margar bækur og leik­rit en auðg­að­ist á verð­bréfa­við­skiptum. Eftir að Sten­er­sen kynnt­ist Munch sá hann um fjár­mál lista­manns­ins og keypti sjálfur fjöl­mörg verka hans. Árið 1936 gaf Sten­er­sen sveit­ar­fé­lag­inu Aker 900 lista­verk, lang­flest eftir Munch. Gef­and­inn lagði áherslu á að verk­unum yrði fund­inn við­eig­andi sama­staður, innan þriggja ára. Áður en það hafði gerst braust síð­ari heims­styrj­öldin út og þá voru önnur verk­efni brýnni. 1948 sam­ein­að­ist Aker sveit­ar­fé­lagið Ósló og þá var Stenergjöfin flutt í geymslu í Ráð­hús­inu í Ósló, sem þá var nýbyggt. Þar voru verkin geymd en árið 1952 voru flest verk­anna hengd upp á nýbyggðum stúd­enta­görðum, Sogn. Rolf E. Sten­er­sen hafði setið í bygg­ing­ar­nefnd­inni og hann var mjög hlynntur því að lista­verkin yrðu hengd upp á stúd­enta­görð­unum. Engar sér­stakar var­úð­ar­ráð­staf­anir voru gerðar þótt, verkin ein­fald­lega hengd á krók, rétt eins og í heima­húsi.

Blaðamenn gerast „þjófar“

Árið 1972 sat Jon Magnus blaða­maður VG (Verdens gang) á kaffi­húsi í Ósló. Þar heyrði hann á tal tveggja ungra manna sem ræddu sín á milli um mál­verkin á stúd­enta­görð­unum og hve auð­velt væri að ræna þeim, engin gæsla og ekk­ert örygg­is­eft­ir­lit. Blaða­mað­ur­inn ákvað, með leyfi rit­stjórnar VG að kanna málið. Hann og ljós­mynd­ari fóru á stað­inn og í tvígang gengu þeir út með mál­verk Munch og sneru jafn­harðan til baka og hengdu verkin upp aftur. Í þriðja skiptið spurði eft­ir­lits­maður í hús­inu hvert þeir væru að fara með þetta lista­verk. „Við sögðum sem satt var að við værum blaða­menn og værum að rann­saka hve auð­velt væri að fjar­lægja dýr­mæt lista­verk sem þarna héngu á veggjum.“ Blaða­menn­irnir voru kærðir til lög­reglu, en málið síðar látið niður falla.

Mál þetta vakti mikla athygli í Noregi og í kjöl­farið var gerð „vörutaln­ing“ á stúd­enta­görð­unum. Þá kom í ljós að fjöld­inn allur af verkum var horf­inn. Lítið gerð­ist fyrr en haustið 1973, eftir að mjög verð­mætu verki eftir Munch hafði verið stolið úr setu­stofu á einum stúd­enta­garð­anna, en það fannst reyndar 11 mán­uðum síðar, óskemmt. Þá var ákveðið að flytja verkin í Munch safnið í Ósló. Sérstakt safn, kennt við Sten­er­sen, var opnað árið 1994 og þar eru nú flest þau verk sem hann gaf árið 1936, og mörg verk sem hann bætti við síðar.

Að minnsta kosti 47 myndir horfnar

Skömmu fyrir nýliðin ára­mót birti norska blaðið Dag­bla­det langa grein um horfin Munch mál­verk. Þar kemur fram að í það minnsta 47 verk eft­irs Munch sem eru (eða voru) í eigu Munch safns­ins í Ósló (Sten­er­sen safnið er nú hluti þess) sé ekki að finna í safn­inu. Hvar þessi verk eru nið­ur­komin veit eng­inn. Týndu verkin eru mis­verð­mæt, sum metin á millj­óna­tugi eða meira, önnur minna virði, í pen­ingum talið.

Munch safnið flytur í nýtt hús, í Bjørvika, skammt frá Óperu­hús­inu í Ósló árið 2020. For­stöðu­maður safns­ins segir að þar verði örygg­is­mál með allt öðrum og betri hætti en nú er.

Verð­mætasta og þekktasta verk Edvard Munch er án efa Ópið. Það var málað árið 1893. Frá hendi mál­ar­ans eru fjögur mál­verk með þessum titli, ein litografía og tvær krít­armyndir. Önnur þess­ara krít­armynda var seld hjá upp­boðs­húsi í New York árið 2012 fyrir upp­hæð sem sam­svarar 13 millj­örðum íslenskra króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

list

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár