Miðflokkurinn rúmlega helmingast í fylgi – fengi 5,7 prósent ef kosið væri í dag

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur ekki mælst minni það sem af er kjör­tíma­bil­inu. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn tekur til sín þorra þess fylgis sem Mið­flokk­ur­inn tapar.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, og Gunnar Bragi Sveinsson, varaformaður flokksins, voru báðir á meðal þeirra sem tóku þátt í drykkjusamsætinu á Klausturbar.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, og Gunnar Bragi Sveins­son, vara­for­maður flokks­ins, voru báðir á meðal þeirra sem tóku þátt í drykkju­sam­sæt­inu á Klaust­ur­bar. Mynd: Miðflokkurinn

Mið­flokk­ur­inn myndi fá 5,7 pró­sent fylgi ef kosið yrði í dag sam­kvæmt nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup. Fylgi flokks­ins mæld­ist 12,0 pró­sent í síð­ustu könnun fyr­ir­tæk­is­ins sem birt var 30. nóv­em­ber. Það hefur því rúm­lega helm­ing­ast.

[links]Könnunin var gerð dag­ana 3. des­em­ber 2018 til 1. jan­úar 2019, eða eftir að hið svo­kall­aða Klaust­ur­mál kom upp. Heild­ar­úr­taks­stærð var 4.899 og þátt­töku­hlut­fall var 58,0 pró­sent. RÚV greindi frá.

Flokkur fólks­ins, sem átti líka tvo þing­menn á Klaust­ur­bar, sem nú hefur verið vikið úr flokknum, myndi fá 5,3 pró­sent fylgi ef kosið yrði í dag. Flokk­ur­inn mæld­ist með 6,2 pró­sent fylgi fyrir rúmum mán­uði síðan.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist sem fyrr stærsti flokkur lands­ins með 22,7 pró­sent fylgi. Stuðn­ingur við hann dróst saman í des­em­ber en fyrir rúmum mán­uði sögð­ust 23,5 pró­sent lands­manna ætla að kjósa flokk­inn.

[adspot]Vinstri græn taka lít­il­lega við sér og fylgi flokks­ins fer úr 10,5 pró­sent í 11,6 pró­sent. En stóri sig­ur­veg­ari Klaust­ur­máls­ins virð­ist sem fyrr vera Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn. Hann mælist nú með 11,4 pró­sent fylgi og bætir við sig 3,9 pró­sentu­stigum milli kann­ana.

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír eru því sam­an­lagt með 45,7 pró­sent fylgi sem myndi ekki duga til að mynda meiri­hluta­stjórn ef kosið yrði í dag. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist 44,8 pró­sent. Það er minnsti stuðn­ingur sem rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur mælst með frá því að hún tók við völdum. Í des­em­ber 2017 mæld­ist stuðn­ingur við hana til að mynda 74,1 pró­sent.

Þeir þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar sem áttu ekki full­trúa á Klaust­ur­bar standa allir nán­ast í stað á milli mán­aða. Sam­fylk­ingin mælist með 18,4 pró­sent fylgi, Píratar með 10,5 pró­sent og Viðreisn með 10,5 pró­sent. Sam­an­lagt fylgi þeirra þriggja er því 39,4 pró­sent og eykst um 0,7 pró­sentu­stig milli mán­aða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár