Krefjast afturvirkra samninga

Efling, VR og Verka­lýðs­fé­lag Akraness funda með Samtökum atvinnu­lífs­ins hjá rík­is­sátta­semj­ara á morgun. Verka­lýðs­fé­lögin gera kröfu um að samn­ingar félag­anna við SA muni gilda aft­ur­virkt til 1. jan­úar 2019, óháð því hvenær samn­ingar nást.

Ragnar Þór, Sólveig Anna og Vilhjálmur.
Ragnar Þór, Sólveig Anna og Vil­hjálmur. Mynd: Samsett mynd

Efling, VR og Verka­lýðs­fé­lag Akraness gera kröfu um að samn­ingar félag­anna við Samtök atvinnu­lífs­ins muni gilda frá og með 1. jan­úar næst­kom­andi, óháð því hvenær samn­ingar nást. Dragist samn­ingar á lang­inn verði þeir ein­fald­lega aft­ur­virkir til þess dags. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Fyrsti fundur með ríkissáttasemjara á morgun

[links]Efling og VLFA klufu sig frá sam­floti með Starfs­greina­sam­band­inu í síð­ustu viku og í kjöl­farið vís­uðu þau ásamt VR kjara­deilu sinni til rík­is­sátta­semj­ara. Á morgun munu stétt­ar­fé­lögin þrjú senda full­trúa sína á fyrsta samn­inga­fund­inn með full­trúum Samtaka Atvinnu­lífs­ins hjá rík­is­sátta­semj­ara. Í sam­tali við Frétta­blaðið segir Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness, að fund­ur­inn sé hugs­aður til gagna­öfl­unar fyrir sátta­semj­ara og ekki sé að vænta stórra tíð­inda af fund­inum.

Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka Atvinnu­lífs­ins, segir í sam­tali við Frétta­blaðið að með fund­inum hefj­ist ferlið form­lega. „Á fund­inum munum við fara með rík­is­sátta­semj­ara yfir gögn sem við höfum áður farið yfir með félög­unum þremur og SGS. Þar eru rúm­lega 200 síður stút­fullar af til­lögum og grein­ingum frá SA,“ segir Halldór. Hann segir jafn­framt að sam­tímis þeim við­ræðum haldi SA áfram að semja við önnur félög sem ekki hafi vísað mál­inu til sátta­semj­ara en hann segir að gang­ur­inn í þeirri vinnu sé mjög góður. [adspot]

Aftur­virkni samninga ó­frá­víkjan­leg krafa

Vil­hjálmur segir að félögin muni reyna að knýja SA til að svara grund­vall­ar­spurn­ingum er lúta að kröfu­gerð félag­anna á fund­inum á morgun. Vil­hjálmur segir að það sé „ófrá­víkj­an­leg krafa" félag­anna þriggja að samn­ing­arnir verði aft­ur­virkir til 1. jan­úar 2019 en þá renna núver­andi samn­ingar sitt skeið. Hann segir að það hafi áður gerst að samn­ingar hafi ekki náðst fyrr en mörgum mán­uðum eftir að fyrri samn­ingur féll úr gildi og að hver mán­uður sem líði án samn­ings þýði að launa­fólk verði af allt að fjórum millj­örðum króna.

Samkvæmt Vil­hjálmi eru for­dæmi fyrir því hjá rík­is­starfs­mönnum að laun séu leið­rétt aft­ur­virkt þegar svo ber undir, þótt það hafi ekki tíðkast á almenna vinnu­mark­aðnum. Hann segir að sam­komu­lag um aft­ur­virkni muni gera samn­ings­að­ilum kleift að nýta tím­ann betur og gefa meira and­rými til samn­inga. Vil­hjálmur segir að ef ekki náist sam­komu­lag um það þá verði að hraða samn­ingum. „ Afleið­ing­arnar geta orðið slæmar ef sátt næst ekki,“ segir Vil­hjálmur að lokum í sam­tali við Frétta­blaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár