Vísa viðræðum við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara

VR, Efling og Verka­lýðs­fé­lag Akraness munu vera í sam­starfi í yfir­stand­andi kjara­samn­inga­við­ræðum.

Ragnar Þór, Sólveig Anna og Vilhjálmur.
Ragnar Þór, Sólveig Anna og Vil­hjálmur. Mynd: Samsett mynd

VR, Efling og Verka­lýðs­fé­lag Akraness munu vera í sam­starfi í yfir­stand­andi kjara­samn­inga­við­ræðum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá VR en sam­starfið var sam­þykkt á fundi stjórnar VR í gær­kvöld.

[links]Formenn VR, Eflingar og Verka­lýðs­fé­lags Akraness hafa nú þegar hist og hefur ákvörðun verið tekin um að vísa við­ræðum félag­anna við Samtök atvinnu­lífs­ins til rík­is­sátta­semj­ara.

Í yfir­lýs­ingu sem Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar – stétt­ar­fé­lags og Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður VLFA sendu frá sér vegna máls­ins í dag segir að þau telji að við­ræður síð­ustu vikna við Samtök atvinnu­lífs­ins hafi verið árang­urs­lausar og afstöðu stjórn­valda skýra vís­bend­ingu um að þau hygg­ist ekk­ert gera til að liðka fyrir við­ræðum.

„Lág­marks­laun á íslenskum vinnu­mark­aði eru 300 þús­und krónur á mán­uði sam­kvæmt kjara­samn­ingum við Samtök atvinnu­lífs­ins. Hús­næð­iskreppa og til­færsla skatt­byrði frá þeim ríku yfir á þá efna­minni gerir það að verkum að ekki er hægt að lifa af þessum launum. Efna­hags­upp­sveifla síð­ustu ára hefur ekki skilað lág­launa­fólki ábata og löngu tíma­bært að snúa við þeirri öfug­þróun,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Jafn­framt kemur fram að stétt­ar­fé­lög versl­un­ar­fólks og almenns launa­fólks standi sam­einuð í þeirri kröfu að dag­vinnu­laun dugi fyrir mann­sæm­andi lífi. Krafa þeirra sé um krónu­tölu­hækk­anir sem leiði til sann­gjarn­ari skipt­ingar kök­unnar, ekki pró­sentu­hækk­anir og launa­skrið.

„Samtök atvinnu­lífs­ins hafa svarað kröfum okkar með gagn­kröfu um upp­stokkun á vinnu­tíma og breyt­ingum á grund­vall­ar­rétt­indum launa­fólks - rétt­indum sem náð­ust með ára­langri bar­áttu vinn­andi fólks. Tólf tíma vinnu­dagur var raun­veru­leiki hér á landi á árum áður. Slíkt verður aldrei liðið aftur á íslenskum vinnu­mark­aði. Skil­grein­ingar á vinnu­tíma er ávinn­ingur af kjara­bar­áttu síð­ustu alda sem aldrei verður fórnað fyrir nafn­launa­hækk­anir sem geta brunnið upp í verð­bólgu.

Við gerum kröfu um rót­tækar breyt­ingar á núver­andi kerfi, sann­gjarnar launa­leið­rétt­ingar og boð­legt líf en fáum lítil sem engin svör. Þeir sem vilja tryggja sann­girni og rétt­læti á vinnu­mark­aði eru sak­aðir um ábyrgð­ar­leysi og jafn­vel öfgar. Eini kost­ur­inn sem býðst vinn­andi fólki er kyrr­stöðu­samn­ingar,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Þá segir að enn og aftur sé til þess ætl­ast að lág­launa­fólk á Íslandi sitji eftir á meðan þeir launa­hæstu skammti sjálfum sér tug­pró­senta launa­hækk­anir án þess að blikna. Verka­lýðs­hreyf­ingin standi sterk og muni berj­ast til að ná fram kröfum fólks­ins um mann­sæm­andi líf.

„Við und­ir­rituð teljum að sögu­legt tæki­færi sé fólgið í breiðri sam­stöðu stétt­ar­fé­laga almenns verka­fólks og versl­un­ar­fólks um krónu­tölu­hækk­anir og hækkun lægstu launa.

Við höfum því tekið þá ákvörðun að vísa við­ræðum þeirra stétt­ar­fé­laga sem við veitum for­ystu við Samtök atvinnu­lífs­ins til rík­is­sátta­semj­ara,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

[box]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

AðsentKjaramál

Jóhannes Hraunfjörð Karlsson

Fleygur í þjóð­ar­sál: Hug­leið­ingar um almanna­trygg­ingar, við­bót­ar­líf­eyri og dóm um líf­eyr­is­sjóði í árs­lok 2021

Jóhannes Hraun­fjörð Karlsson segir að núver­andi for­sæt­is­ráð­herra hafa fært almennt sið­ferði niður. Í hennar tíð hafi laun þing­manna og emb­ætt­is­manna marg­fald­ast og séu nú að auki vísi­tölu­bundin en slíkt tíðk­ist hvergi nema um lág­marks­laun.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár