WOW air selur fjórar þotur til Air Canada

WOW air hefur sam­þykkt að selja fjórar Airbus flug­vélar til Air Canada. Í kjöl­farið mun sjóð­staða WOW air batna um 12 millj­ónir Banda­ríkja­dala. Salan er hluti af end­ur­skipu­lagn­ingu félags­ins.

WOW air hefur skrifað undir samn­ing þess efnis að selja fjórar Airbus flug­vélar til Air Canada. Í til­kynn­ingu frá félag­inu segir að í kjöl­far söl­unnar muni sjóð­staða WOW air batna um 12 millj­ónir Banda­ríkja­dala. Stjórn WOW air hefur sam­þykkt við­skiptin en þessi sala er hluti af end­ur­skipu­lagn­ingu félags­ins en sam­kvæmt til­kynn­ing­unni hefur það legið fyrir að minnka þurfi flot­ann til þess að auka hag­kvæmni, draga úr árs­tíða­sveiflu og hámarka arð­semi.

„Þetta er mjög jákvætt og mik­il­vægt skref í end­ur­skipu­lagn­ingu WOW air þar sem við bæði minnkum flot­ann og bætum lausa­fjár­stöðu félags­ins með sölu á þessum flug­vélum,“ segir Skúli Mogensen for­stjóri og stofn­andi WOW air.

Um er að ræða Airbus A321 vélar sem WOW air hefur verið með á kaup­leigu frá 2014. Vélarnar verða afhentar í jan­úar 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár