Þingmennirnir fjórir áfrýja til Landsréttar

Mið­flokks­menn áfrýja og segja Báru hafa þaul­skipu­lagt verkn­að­inn og gengið „fum­laust til verka“, sam­kvæmt Stund­inni.

Bára Halldórsdóttir
Bára Hall­dórs­dóttir Mynd: Bára Huld Beck

Fjórir þing­menn Mið­flokks­ins hafa kært úrskurð Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, þar sem hafnað var beiðni sókn­ar­að­ila um að fram færu vitna­leiðslur og öflun sýni­legra sönn­un­ar­gagna um atburð­ina á Klaustri, til Lands­réttar. Þetta kemur fram í frétt Stund­ar­innar í dag.

[links]Gera þing­menn­irnir, þau Anna Kolbrún Árna­dóttir, Bergþór Ólason, Gunnar Bragi Sveins­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þá kröfu að úrskurður Hér­aðs­dóms verði felldur úr gildi, enda telja þau að for­sendur dóms­ins fái ekki stað­ist, segir í frétt­inni.

Kröfu þing­mann­anna um gagna­öflun og vitna­leiðslur fyrir Hér­aðs­dómi vegna fyr­ir­hug­aðrar máls­sóknar gegn Báru Hall­dórs­dótt­ur, sem hljóð­rit­aði sam­skipti þeirra á Klaustri þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, var hafn­að fyrr í vik­unni.

Stundin hefur kæruna undir höndum en hún var send 19. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Þar kemur fram að þing­menn­irnir hafi þegar óskað eftir myndefni úr eft­ir­mynda­vélum frá Klaustri og Alþingi, enda telji þeir mik­il­vægt að upp­lýsa um máls­at­vik þann 20. nóv­em­ber á Klaustri bar.

Samkvæmt frétt Stund­ar­innar vekur lög­maður Mið­flokks­manna, Reimar Pét­urs­son, athygli á því að Bára hafi greint frá því í fjöl­miðlum hvernig hún „sperrti eyrun“ og „þótt­ist“ vera að lesa ferða­manna­bæk­linga sem hún hafði með­ferðis þegar hún hljóð­rit­aði sam­skipti þing­mann­anna. Þá vísi Reimar sér­stak­lega til myndar sem birt­ist í Stund­inni og var tekin fyrir utan Klaustur „áður en varn­ar­að­ili hóf aðgerðir sínar nema, ef vera skyldi, að ein­hver annar hafi tekið hana“.

Af þessu dragi hann ályktun um ein­beittan ásetn­ing Báru: „Allt þetta gefur til kynna að þegar varn­ar­að­ili kom á Klaustur hafi hún komið þangað með það fyr­ir­fram­gefna mark­mið að njósna um og taka upp sam­töl sókn­ar­að­ila. Hún hafi gengið fum­laust til verka. Hún hafi haft með­ferðis bæk­linga sem hún not­aði sem yfir­varp og búnað sem hent­aði til verks­ins. Þá hafi hún dvalið á staðnum svo lengi sem í fjórar klukku­stundir. Hafi hún þó sagst hafa verið á leið­inni á æfingu á leik­sýn­ingu sem ætl­unin var að frum­sýna tveimur dögum síðar, án þess að þetta hafi neitt tálmað þaul­setu hennar yfir upp­tök­unum.“

Í frétt Stund­ar­innar segir enn fremur að þing­menn­irnir telji þetta gefa „ríka ástæðu til að kanna hvort ein­hver annar hafi komið að fram­kvæmd þess­arar aðgerðar með varn­ar­að­ila eða hafi fylgt henni til hennar“. Finnist þeim frá­sögn Báru vera „öll út og suður“. Til að mynda segi hún eina stund­ina að sam­talið hafi verið opin­bert en aðra stund­ina lýsi hún erf­ið­leikum við að greina orða­skipti. „Trú­verð­ug­leiki frá­sagnar varn­ar­að­ila er því eng­inn.“

Fram komi að þing­menn­irnir séu hættir við að biðja um að dóm­kirkju­prestur verði kall­aður fyrir dóm. „Sókn­ar­að­ilum hafði verið tjáð að kirkjan héldi út örygg­is­mynda­vélum, en í ljós mun vera komið að svo er ekki.“ Þarna vísi þeir vænt­an­lega til orða Sveins Val­geirs­sonar dóm­kirkju­prests: „Við erum ekki með neinar eft­ir­lits­mynda­vélar til að leita í. Eini eft­ir­lits­bún­að­ur­inn sem eitt­hvað gæti tengst Dóm­kirkj­unni væri hið alsjá­andi auga drott­ins og hans alþunna eyra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár