Kröfu þingmanna um gagnaöflun og vitnaleiðslur hafnað

Hér­aðs­dómur hefur hafnað kröfu fjög­urra þing­manna Mið­flokks­ins um gagna­öflun og vitna­leiðslur fyrir Hér­aðs­dómi vegna fyr­ir­hug­aðrar máls­sóknar gegn Báru Hall­dórs­dóttur. Dóm­kirkju­prestur og skrif­stofu­stjóri Alþingis verða því ekki kall­aðir fyrir dóm.

Bára Halldórsdóttir með lögmönnum sínum 17. desember 2018
Bára Hall­dórs­dóttir með lög­mönnum sínum 17. des­em­ber 2018 Mynd: Bára Huld Beck

Kröfu fjögurra þingmanna Miðflokksins um gagnaöflun og vitnaleiðslur fyrir Héraðsdómi vegna fyrirhugaðrar málssóknar gegn Báru Halldórsdóttur, sem hljóðritaði samskipti þeirra á Klaustri þann 20. nóvember síðastliðinn, hefur verið hafnað. Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm þess efnis rétt í þessu en Stundin greindi fyrst frá.

Kröfu um efni af eftirlitsmyndavélum hafnað

[links]Dómkirkjuprestur og skrifstofustjóri Alþingis verða því ekki kallaðir fyrir dóm vegna fyrirhugaðs málareksturs þingmanna gegn Báru líkt og Reim­ar Pétursson, lögmaður fjórmenninganna, hafði óskað eftir. Einnig hafði verið kallað eftir því að fyrirsvarsmenn og starfsmenn Klausturs yrðu leiddir fyrir dóm til vitnis um mannaferðir og aðstæður á barnum þann 20. nóvember.

Reimar hafði einnig farið fram á að lagt yrði fyrir dóm myndefni af eft­ir­lits­mynda­vélum Alþingis og Dómkirkjunnar sem myndi sanna hvernig brotið hefði verið gegn þing­mönn­un­um. Reimar sagði að með myndefn­inu ætti að vera hægt að sjá nákvæm­lega hvernig Bára hefði haldið upp­tök­unni leyndri fyrir þing­mönn­unum og hvort ein­hverjir hefðu fram­kvæmt brotið með henn­i. Þessari kröfu hefur nú verið hafnað líkt og kröfunum um vitnaleiðslur hér fyrir ofan.

Erindið liggur nú hjá Persónuvernd

Ragnar Aðalsteinsson lögmaður Báru segir í samtali við Stundina að þau hafi frekar búist við þessari niðurstöðu. Ragnar segir að erindið liggi nú hjá Persónuvernd og að þingmennirnir fjórir hafa sagt að þeir ætli í einkamál. Hann segir að þau bíði því bara og sjái hvert framhaldið verði.

Greint hefur verið frá því að fjórir þing­menn Mið­flokks­ins, þeir Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Gunnar Bragi Sveins­son, Anna Kol­brún­ Árna­dótt­ir og Berg­þór Óla­son eru skráðir sókn­ar­að­ilar á dag­skrá Hér­aðs­dóms Reykja­vík­ur. Reimar Pét­urs­son, lög­maður þeirra, hefur sagt að þing­menn­irnir fjórir hafi máls­höfðun til skoð­unar og að mark­miðið með vitna­leiðslu­beiðni sé ein­falt, þeir vilji tryggja að sannað yrði hvernig brotið hefði verið gegn þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár