Vilja að myndefni af eftirlitsmyndavélum verði lagt fyrir dóm

Bára Hall­dórs­dóttir mætti fyrir Hér­aðs­dóm í gær vegna máls fjög­urra Klaust­urs­þing­manna gegn henni. Lögmaður þing­mann­anna krefst þess að fá myndefni úr eft­ir­lits­mynda­vélum á svæð­inu til að ganga úr skugga um að Bára hafi verið ein á ferð.

Bára Halldórsdóttir
Bára Hall­dórs­dóttir Mynd: Bára Huld Beck

Bára Halldórsdóttir, sem hljóðritaði samtal sex þingmanna á barnum Klaustri þann 20. nóvember, var boðuð til þinghalds í Héraðsdómi Reykjavíkjur í gær. Lögmaður þeirra fjögurra þingmanna Miðflokksins sem komu við sögu í Klaustursmálinu fór fram á að myndefni úr eftirlitsmyndavélum Alþingis og Dómkirkju yrði varðveitt og lagt fyrir dóm. Verjendur Báru mótmæltu kröfu lögmannsins.

Telja að brotið hafi verið á rétti þeirra til einkalífs

Fjórir þingmenn Miðflokksins, þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Anna Kolbrún Árnadóttir og Bergþór Ólason eru skráðir sóknaraðilar á dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur. Reimar Pétursson, lögmaður þeirra, sagði að þingmennirnir fjórir hefðu málshöfðun til skoðunar og að markmiðið með vitnaleiðslubeiðni væri einfalt, þeir vildu tryggja að sannað yrði hvernig brotið hefði verið gegn þeim.

Í Hér­aðs­dómi í gær fór Reimar fram á að lagt yrði fyrir dóm myndefni af eft­ir­lits­mynda­vélum Alþingis og Dóms­kirkj­unnar sem myndi sanna hvernig brotið hefði verið gegn þing­mönn­unum. Hann sagði að mik­il­vægt væri að tryggja til­vist myndefn­is­ins áður en varð­veislu­tími þess rynni út en við­mið­un­ar­regla Per­sónu­verndar er 90 dagar. Sá varð­veislu­tími væri ekki nægj­an­legur ef til dóms­máls kæmi.

Reimar sagði að með myndefn­inu ætti að vera hægt að sjá nákvæm­lega hvernig Bára hefði haldið upp­tök­unni leyndri fyrir þing­mönn­unum og hvort ein­hverjir hefðu fram­kvæmt brotið með henni. „Umbjóð­endur mínir vilja tryggja sönnun um það hvernig að brot­inu gegn þeim var staðið,“ sagði Reimar. „Umbjóð­endur mínir telja að frek­lega hafi verið brotið á rétti þeirra til einka­lífs. Þetta hafi gerst þegar einka­sam­tal á Klaustri var hljóð­ritað að þeim óaf­vit­andi og gert opin­bert. Í því hafi falist brot gegn 229. grein almennra hegn­ing­ar­laga,“ sagði hann og benti á að þessi hátt­semi gæti varðað skaða- og miska­bóta­skyldu.[adspot]

Verjendur Báru mótmæltu kröfu sóknaraðila

Verj­endur Báru, lög­menn­irnir Ragnar Aðal­steins­son og Auður Tinna Aðal­bjarn­ar­dóttir, mót­mæltu kröfu sókn­ar­að­ila um að leggja myndefnið fyrir dóm. Þeir bentu á umfjöllun Stund­ar­innar um málið og sögðu Báru þar hafa greint ítar­lega frá því hvernig atvikum var háttað.

Dómari ætlar að taka málið til úrskurðar og sagði hann að von­andi yrði hann kveð­inn upp í viku­lok, það gæti þó dreg­ist.

Fjöldi fólks mætti til að sýna Báru stuðning

Í sam­tali við frétta­stofu Rúv í gær sagði Bára það af og frá að hún hefði átt sér sam­verka­menn eða að hún hefði tekið upp sam­talið með öðrum hætti en hún hefur lýst. „Það finnst mér skemmti­lega fárán­legt. Ég lýsti því í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 að ég er ekki mjög óáber­andi mann­eskja þannig að ef ég hefði verið að elta þá á röndum þá hefðu þeir átt að vera búnir að taka eftir mér og ég skap­aði ekki orðin sem þeir komu frá sér heldur,“ sagði Bára.

Fjöl­menni beið Báru er hún gekk inn í Hér­aðs­dóm Reykja­víkur í gær til að sýna henni stuðn­ing og hvetja hana til dáða.

„Ég er ein af þeim sem hef hlustað á svona tal alla mína ævi og mér fannst það þess virði að koma því beint og hrátt út og hægt að ræða um hvernig ver­öldin er stundum,“ sagði Bára að lokum í sam­tali við Rúv.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár