Útgerðarfélag Reykjavíkur öðlaðist ekki yfirráð í HB Granda

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur öðl­að­ist ekki yfir­ráð yfir HB Granda með kaupum á þriðj­ungs­hlut í félag­inu að mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Eft­ir­litið segir þó félög­unum að hafa „vak­andi auga“ með því hvort í reynd stofn­ist til yfir­ráða ÚR í HB Granda.

Guðmundur Kristjánsson
Guð­mundur Krist­jáns­son Mynd: Brim Seafood

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur ekki unnt að slá því föstu að Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur hafi, með kaupum á ríf­lega þriðj­ungs­hlut í HB Granda, öðl­ast yfir­ráð yfir sjáv­ar­út­vegs­fé­lag­inu í skiln­ingi sam­keppn­islaga. Komi hins vegar fram vís­bend­ingar um annað áskilur eft­ir­litið sér rétt til þess að rann­saka málið að nýju. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Fylgjast með hvort að reynt verið að stofna til yfirráða

[links]Í apríl 2018 keypti Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur sem áður var Brim, 34 pró­sent eign­ar­hluta í HB Granda. Heild­ar­upp­hæð við­skipt­anna nam tæp­lega 21,7 millj­örðum króna, en mark­aðsvirði HB Granda á sama tíma var metið á 54,7 millj­arða króna. HB Grandi er það útgerð­­ar­­fyr­ir­tæki sem er með mesta afla­hlut­­deild allra íslenskra útgerða, eða 10,4 pró­­sent. Guð­mundur Krist­jáns­son tók við sem for­stjóri HB Granda í kjöl­far kaupanna.

Í nóv­em­ber sam­þykkti síðan stjórn HB Granda að kaupa Ögur­vík af útgerð­ar­fé­lag­inu Brim. Stærsti eig­andi Brim og þar með selj­andi Ögur­víkur var Guð­mundur Krist­jáns­son, stærsti eig­andi og for­stjóri HB Granda.

Í sumar upp­lýsti Sam­keppn­is­eft­ir­litið félögin um að til­kynn­ing­ar­skyldur sam­runi kynni að hafa átt sér stað þegar Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur eign­að­ist kjöl­festu­hlut í HB Granda síð­asta vor. Sagði eft­ir­litið að um slíkan sam­runa gæti verið að ræða þrátt fyrir að fyrr­nefnda félagið hefði ekki eign­ast meiri­hluta í því síð­ar­nefnda. Aðal­at­riðið væri að meta hvort kaupin veittu kaup­and­anum yfir­ráð yfir HB Granda, til að mynda hvort hann kæm­ist í þá stöðu að geta tekið mik­il­vægar ákvarð­anir innan félags­ins.

Í bréfi Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, sem Frétta­blaðið hefur undir höndum, er hins vegar til­kynnt að eft­ir­litið teldi kaup Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur á 34 pró­sent hlut í HB Granda hafi ekki verið til­kynn­ing­ar­skyld. Í bréf­inu kemur einnig fram að beint er til umræddra félaga að hafa „vak­andi auga“ með því hvort í reynd stofn­ist til yfir­ráða Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur í HB Granda þó svo að ekki sé um meiri­hluta­eign­ar­hald að ræða. „Dreifing eign­ar­halds, mæt­ing á hlut­hafa­fundum og aðkoma ann­arra eig­enda að stjórnun getur skipt máli í því sam­bandi,“ segir í bréfi Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Samkeppniseftirlitið fundaði með lífeyrissjóðum

Fram kemur í bréf­inu að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi fundað með for­svars­mönnum Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna, Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins og Gildis, en sjóð­irnir eru á meðal stærstu hlut­hafa HB Granda. Eft­ir­litið spurði þá m.a. hvernig hlut­hafa þeir teldu sig vera í félag­inu og jafn­framt hvaða áhrif það hefði, að þeirra mati, að aðal­eig­andi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur sæti í for­stjóra­stóli félags­ins. Líf­eyr­is­sjóð­irnir svör­uðu því til að þeirra hlut­verk væri einna helst að gæta að góðum stjórn­ar­háttum innan HB Granda en þeir kæmu ekki að dag­legri stjórnun.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir lögðu enn fremur áherslu á mik­il­vægi þess að hafa kjöl­festu­fjár­festi, líkt og Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, í hlut­hafa­hópnum til móts við stofn­ana­fjár­festa.Einnig segir í bréf­inu að þeim þótti jákvætt fyrir félagið hve umfangs­mikla reynslu og þekk­ingu Guð­mundur hefði á sviði sjáv­ar­út­vegs.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið taldi sjón­ar­mið líf­eyr­is­sjóð­anna geta bent til þess að líta mætti svo á að Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur hefði öðl­ast yfir­ráð yfir HB Granda á grund­velli sér­þekk­ingar útgerð­ar­fé­lags­ins. Á hinn bóg­inn sagði eft­ir­litið ljóst að mæt­ing á hlut­hafa­fundi í HB Granda væri góð sem benti til þess að Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur kæmi ekki til með að fara með meiri­hluta atkvæða­magns á slíkum fundum. Aðrir hlut­hafar gætu því gripið inn í mik­il­vægar ákvarð­anir félags­ins. Þetta kemur fram í bréfi Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins sem Frétta­blaðið hefur undir hönd­unum.

Varhugavert að sami maður sem á hlutafé í einu félagi, sé á sami tíma forstjóri félags á sama markaði

Í bréfi Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins kemur fram að eft­ir­litið rann­saki enn hvort það feli í sér sam­keppn­is­brot að Guð­mundur Krist­jáns­son, aðal­eig­andi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur, sé for­stjóri HB Granda og hafi setið í stjórn Vinnslu­stöðv­ar­innar. Eft­ir­litið hefur aflað gagna vegna máls­ins, að því er segir í bréf­inu, og er rann­sókn­inni ólokið. Sam­keppn­is­eft­ir­litið sagði í sumar að var­huga­vert væri í sam­keppn­is­legu til­liti að sami maður, sem ætti allt hlutafé í einu félagi, væri á sama tíma for­stjóri félags á sama mark­aði og stjórn­ar­maður í því þriðja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

útgerð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár