Kleifarberg svipt veiðileyfi vegna brottkasts

Togarinn Kleifa­berg RE hefur verið sviptur veiði­leyfi í þrjá mán­uði vegna brott­kasts. Fiski­stofa telur brott­kastið ásetn­ings­brot og beitir þyngstu við­ur­lögum sem lög leyfa. Útgerðin mun kæra til atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Kleifaberg RE
Kleifa­berg RE Mynd: Anna K. Kristjánsdóttir

Fiski­stofa hefur svipt togar­ann Kleif­ar­berg RE-70, sem er gert út af Útgerð­ar­fé­lagi Reykjavíkur, leyfi til fisk­veiða í atvinnu­skyni í tólf vikur vegna brott­kasts. Svipt­ingin tekur gildi frá og með 4. febr­ú­ar. Ákvörð­unin er dag­sett 2. jan­ú­ar. Frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Kveikur fjall­aði ítar­lega um brott­kastið í þætti sem var sýndur í nóv­em­ber 2017. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag. Útgerðarfélag Reykjavíkur ætlar að kæra sviptinguna til atvinnu- og nýsköðunarráðuneytisins en félagið segir að leyfissviptingin sé í raun „dauðadómur“ yfir Kleifabergi.

Fyrrverandi skipverji kom myndskeiðunum til Fiskistofu

Það var fyrr­ver­andi skip­verji á Kleifa­bergi sem afhenti mynd­skeið til Fiski­stofu í des­em­ber 2017 sem hann sagð­ist hafa tekið um borð í Kleif­ar­berg og sýndi hvernig fiski sem komið hafði um borð í skipið með veið­ar­færum var kastað aftur í sjó­inn. Um er að ræða mynd­skeið frá árunum 2008, 2010 og 2016.

Frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Kveikur fjall­aði um þessi mynd­skeið í þætti sem sýndur var í nóv­em­ber 2017. Í úrskurði Fiski­stofu er vikið sér­stak­lega að þessum þætti Kveiks og tekið fram að á fundi með lög­fræð­ingi Fiski­stofu hafi skip­verj­inn fyrr­ver­andi sagt að brott­kastið um borð í Kleif­ar­bergi hefði í öllum til­vikum verið sam­kvæmt fyr­ir­mælum frá skip­stjóra og stýri­manni.

„Þetta er nið­ur­staða sem liggur fyrir í fram­haldi af rann­sókn sem fór af stað í kjöl­far upp­lýs­inga sem komu meðal ann­ars fram í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik á RÚV,“ segir Eyþór Björns­son fiski­stofu­stjóri.

Fiskistofa telur að útgerðin hafi haft fjárhagslegan ávinning af brottkastinu

Í úrskurði Fiski­stofu er útgerðin kemur fram að talið er að útgerðin hafi haft fjár­hags­legan ávinn­ing af því að kasta fiski fyrir borð sem ann­ars yrði til að tefja vinnslu um borð eða sem full­nægði ekki kröfum útgerð­ar­innar. Miklu magni af fiski hafi verið hent með vit­und og sam­kvæmt fyr­ir­mælum skip­stjóra. Einnig megi ganga út frá því, eins og atvikum er lýst, að um ásetn­ings­brot hafi verið að ræða.

„Ég hef aldrei gefið fyr­ir­skipun um brott­kast, það er engin útgerð­ar­maður sem gefur fyr­ir­skipun um brott­kastið,“ sagði Guð­mundur Krist­jáns­son, þáver­andi útgerð­ar­stjóri Brims, sem gerði þá út Kleif­ar­berg, í við­tali við RÚV í nóv­em­ber 2017.

Fyrir brotin fær útgerðin þyngstu við­ur­lög sem lög leyfa; svipt­ingu veiði­leyfis í 12 vikur. Um við­ur­lögin segir í úrskurð­inum að hvorki útgerðin, áhöfn né aðrir sem starfi í þágu útgerð­ar­innar hafi orðið upp­vísir að sam­bæri­legum brotum áður en vegna fjölda atvikanna, hve mik­ill afl­inn var og vegna aug­ljóss ásetn­ings telji stofn­unin rétt að hafa veiði­leyf­is­svipt­ing­una eins langa og lög leyfa. [adspot]

Útgerðin telur málatilbúnað Fiskistofu ekki standast

Í yfir­lýs­ingu frá Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur segir að úrskurð­ur­inn verði kærður til atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins. Félagið telur sig ekki hafa fengið rétt­láta máls­með­ferð hjá Fiski­stofu sem hafi bæði rann­sakað meint brot og fellt úrskurð. „Við erum alveg miður okkar yfir þess­ari ákvörðun og teljum hana ranga,“ segir Runólfur Viðar Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri hjá Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur. Hann segir ekki hafa verið tekið til­lit til sjón­ar­miða og rök­semda félags­ins við rann­sókn máls­ins. 

Útgerðin telur mála­til­búnað Fiski­stofu ekki stand­ast en úrskurður hennar byggi á lýs­ingu eins manns og mynd­skeiðum sem auð­velt sé að eiga við og bjaga. Þá telji útgerð­ar­fé­lagið að þau meintu brot sem Fiski­stofa telur að hafi verið framin á árunum 2008 og 2010 séu löngu fyrnd.

Enn fremur hafi eitt mynd­skeið­anna verið kært til lög­reglu enda sé það falsað að mati sér­fræð­inga útgerð­ar­innar. Að þessu atriði er vikið í úrskurði Fiski­stofu en vísað til ann­arra atriða sem styðji frá­sögn upp­ljóstr­ar­ans, þar á meðal færslna í afla­dag­bók skips­ins, gagna Fiski­stofu og vitn­is­burðar ann­ars skip­verja sem var í einni af umræddum veiði­ferðum.

Sjávarútvegsráðherra boðaði aðgerðir gegn brottkasti

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, sagði í Silfr­inu 27. nóv­em­ber í kjöl­far Kveiks­þátts­ins að útgerðin beri mesta ábyrgð á brott­kasti og því að vigtun afla væri ekki sem skyldi. Hún sagði enn fremur að styrkja þyrfti úrræði og við­ur­lög vegna þessa.

Í apríl síð­ast­liðnum boð­aði Kristján Þór Júl­í­us­son, núver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, aðgerðir gegn brott­kasti. Ráð­herr­ann lagði meðal ann­ars fram frum­varpi þar sem Fiski­stofu var veitt heim­ild til að not­ast við mynda­vélar í eft­ir­liti stofn­un­ar­innar.

Telja að sviptingin rýri tekjur útgerðarinnarum um einn milljarð

Í yfir­lýs­ingu Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur kemur fram að þótt ákvörðun Fiski­stofu verði kærð til ráðu­neyt­is­ins fresti það ekki veiði­leyfa­svipt­ingu. Mat útgerð­ar­innar sé að þetta muni rýra tekjur hennar um allt að einum millj­arði auk þess að valda henni var­an­legum skaða þar sem óvíst er hvort að skipið muni halda aftur til veiða.

„Þetta eru gríð­ar­lega hörð við­ur­lög, í raun dauða­dómur yfir Kleifa­bergi RE-70. Kleifa­berg hefur verið meðal feng­sæl­ustu fiski­skipa íslenska flot­ans. Afli skips­ins frá árinu 2007 hef­ur­verið tæp 100.000 tonn og afla­verð­mæti yfir 30 millj­arðar króna á núvirði. Lang stærsti hluti þessa frá­bæra árang­urs má þakka yfir­burða áhöfn á skip­inu. Ef skipið stoppar í 3 mán­uði eru allar líkur á að sjó­menn á Kleifa­bergi fái vinnu á öðrum skipum. Með þess­ari ákvörðun er verið að leggja niður 52 manna vinnu­stað,“ segir Runólfur Viðar í yfir­lýs­ingu útgerð­ar­fé­lags­ins.

Í við­tali við Kveik árið 2017 sagði Eyþór Björns­son, fiski­stofu­stjóri, að við­ur­lög vegna brott­kasts væru í raun gagns­laus. Veiði­leyfa­svipt­ingar væru þannig úr garði gerðar að hægt væri að kom­ast hjá þeim með því að færa kvóta og áhöfn yfir á annað skip og halda veiðum áfram, á meðan við­kom­andi skip sætir veiði­leyfa­svipt­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár