Stjórn HB Granda samþykkir kaup á Ögurvík á 12,3 milljarða

Stjórn HB Granda, eina skráða sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækis lands­ins, hefur sam­þykkt að kaupa Ögurvík af Brim. Eigandi Brim, og þar með selj­andi Ögur­víkur, er stærsti eig­andi og for­stjóri HB Granda.

Stjórn HB Granda sam­þykkti á fundi í gær að kaupa allt hlutafé í útgerð­ar­fyr­ir­tæk­inu Ögurvík ehf. Kaup­verðið er 12,3 millj­arðar króna og sam­kvæmt til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands byggir það á nið­ur­stöðum tveggja óháðra mats­manna.

[links]Auk þess vinnur Deloitte á Íslandi skýrslu um kaupin sam­kvæmt lögum um við­skipti tengdra aðila og verður hún kynnt hlut­höfum með fund­ar­boði. Ástæða þess er sú að frá­far­andi eig­andi Ögur­víkur er Brim. Það félag er stærsti ein­staki eig­andi HB Granda með 35 pró­sent eign­ar­hlut og aðal­eig­andi þess, Guð­mundur Krist­jáns­son, sett­ist nýverið í for­stjóra­stól­inn hjá HB Granda. Hann er því að kaupa eign af sjálfum sér.

Aðrir eigendur fóru fram á óháð mat

Tilkynnt var um að sam­komu­lag hefði náðst um kaupin þann 7. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Það sam­komu­lag var þó bundið sam­þykki stjórnar og hlut­hafa­fundar.

Stærstu eig­endur HB Granda, að Brim frá­töldu, eru íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir. Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna á 13,66 pró­sent hlut, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins á 9,94 pró­sent hlut, Gildi líf­eyr­is­sjóður á 8,62 pró­sent hlut og Birta líf­eyr­is­sjóður á 8,62 pró­sent hlut.

Kjarninn greindi frá því fyrr í vik­unni að aðrir hlut­hafar hefðu lagt mikla áherslu á að utan­að­kom­andi aðilar yrðu fengnir til að leggja mat á þau verð­mæti sem HB Grandi er að kaupa, í ljósi þess að verið sé að kaupa félag sem fyrir er í eigu for­stjóra HB Granda og stærsta eig­anda þess. Ekki er til­greint í til­kynn­ing­unni til kaup­hallar hvaða utan­að­kom­andi aðilar mátu virði Ögur­víkur.

[adspot]Við­skiptin eru einnig háð sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Til stendur að fjár­magna kaupin með eigin fé og láns­fjár­magni.

16,4 sinnum eigið féð

Kjarn­inn greindi frá því á mánu­dag að sam­kvæmt árs­reikn­ingi Ögur­víkur fyrir árið 2017 þá hafi hagn­aður félags­ins numið 37 millj­ónum króna. Það hagn­að­ist hins vegar um 485 árið 2017. Félagið var með 747 millj­­ónir í eigið fé í lok árs. Eignir námu 6,25 millj­­örðum króna en skuldir 5,5 millj­­örðum króna. Þar af voru lang­­tíma­skuldir í erlendri mynt, 4,8 millj­­arðar króna.

Verð­mið­inn sem til­­kynnt var um til kaup­hallar er því 16,4 sinnum eigið fé félags­­ins, miðað við stöð­una eins og hún var í lok árs í fyrra.

Til sam­an­­burðar er verð­mið­inn á HB Granda nú 56,5 millj­­arðar króna, en eigið fé félags­­ins var um mitt þetta ár 250 millj­­ónir evra, eða sem nemur um 32,5 millj­­örðum króna. Mark­aðsvirðið er því 1,7 sinnum eigið fé félags­­ins.

Gerir út einn frysti­tog­ara

Ögur­vík er útgerð­ar­fé­lag í Reykja­vík sem gerir út frysti­togar­ann Vigra RE 71. Afla­heim­ildir hans á fisk­veiði­ár­inu sem hófst í byrjun mán­aðar eru 7.680 tonn af botn­fiski og 1.663 tonn af mak­ríl. Vigri RE er eitt kvóta­hæsta fiski­skip íslenska flot­ans.

Rúm tvö ár eru síðan að Brim keypti Ögur­vík, en þá var kaup­verðið sagt trún­að­ar­mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

grandi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár