Verulega umfangsmikil viðskipti með Ögurvík

Eina sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið sem skráð er á markað boðar mik­inn vöxt, með kaupum á Ögurvík af Brimi, sem for­stjóri HB Granda á að stærstum hluta.

HB Grandi hyggst kaupa Ögurvík ehf. fyrir 12,3 millj­arða króna, fáist til þess sam­þykki frá stjórn og hlut­hafa­fundi. Um þetta var til­kynnt 7. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Þá eru við­skiptin einnig háð sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um sam­runa þann sem kaupin leiða til. Kaupin verða fjár­mögnuð með eigin fé og láns­fjár­magni, segir í til­kynn­ingu. Hluta­bréfin verða afhent við greiðslu kaup­verðs.

[links]Brim hf., sem Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri HB Granda, á, er eig­andi Ögur­víkur en Brim keypti félagið í júlí 2016. Verð­mið­inn í þeim við­skiptum hefur ekki komið fram opin­ber­lega. Umsvif Brims hafa hins vegar auk­ist mikið að und­an­förnu, enda er félagið nú orðið að kjöl­festu­hlut­hafa í HB Granda.

Eigið fé Brims nam í árs­lok 2016 um 23 millj­örðum króna, en heild­ar­skuldir voru á sama tíma 31 millj­arður króna. Frá þeim tíma hefur mikið vatn runnið til sjávar enda keypti félagið hlut­inn í HB Granda fyrir um 22 millj­arða króna.

Eins og fjallað var ítar­lega um á vef Kjarnans síð­ast­lið­inn föstu­dag, þá hefur Lands­bank­inn verið helsti við­skipta­banki Brims og Guð­mundar.

Umfangsmikil viðskipti

Við­skiptin telj­ast veru­lega umfangs­mikil á íslenskan mæli­kvarða, en til sam­an­burðar þá er upp­hæðin sem til­kynnt hefur verið um hærri en sem nemur mark­aðsvirði Origo, áður Nýherja, en mark­aðsvirði þess félags er nú tæp­lega 10 millj­arðar. Þá jafn­gildir verðið um 56 pró­sent af mark­aðsvirði VÍS en mark­aðsvirði þess félags er 21,9 millj­arðar króna.

[adspot]Samkvæmt árs­reikn­ingi Ögur­víkur fyrir árið 2017 þá nam hagn­aður félags­ins 37 millj­ónum króna, sam­an­borið við 485,2 millj­ónir árið 2017.

Félagið var með 747 millj­ónir í eigið fé í lok árs. Eignir námu 6,25 millj­örðum króna en skuldir 5,5 millj­örðum króna. Þar af voru lang­tíma­skuldir í erlendri mynt, 4,8 millj­arðar króna.

Verð­mið­inn sem til­kynnt var um til kaup­hallar er því 16,4 sinnum eigið fé félags­ins, miðað við stöð­una eins og hún var í lok árs í fyrra.

Allt annar margfaldari

Til sam­an­burðar er verð­mið­inn á HB Granda nú 56,5 millj­arðar króna, en eigið fé félags­ins var um mitt þetta ár 250 millj­ónir evra, eða sem nemur um 32,5 millj­örðum króna. Mark­aðsvirðið er því 1,7 sinnum eigið fé félags­ins.

Heild­ar­eignir HB Granda námu um mitt þetta ár 514 millj­ónum evra, eða sem nemur um 66,8 millj­örðum króna.

Stærsti hlut­hafi HB Granda er Brim hf. með tæp­lega 38 pró­sent hlut. Aðrir stærstu hlut­hafar eru einkum líf­eyr­is­sjóðir. Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna á 13,66 pró­sent, LSR 9,94 pró­sent, Gildi líf­eyr­is­sjóður 8,62 pró­sent, Birta líf­eyr­is­sjóður 3,95 pró­sent og aðrir hlut­hafar eiga minna, en sam­an­lagt 28,8 pró­sent. HB Grandi er eina sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið á Íslandi sem skráð er á aðal­l­ista kaup­hallar Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár