Vilja að utanaðkomandi aðilar meti virði Ögurvíkur

HB Grandi hefur gert sam­komu­lag um að kaupa félagið Ögurvík af stærsta eig­anda sínum og for­stjóra, Guðmundi Krist­jáns­syni, á 12,3 millj­arða króna. Stjórn og hlut­hafa­fundur eiga eftir að sam­þykkja kaupin.

Guðmundur Kristjánsson er stærsti eigandi HB Grandi og settist nýverið sjálfur í forstjórastól félagsins.
Guð­mundur Krist­jáns­son er stærsti eig­andi HB Grandi og sett­ist nýverið sjálfur í for­stjóra­stól félags­ins. Mynd: Brim Seafood

Hlut­hafar í HB Granda, sem Kjarninn hefur rætt við, vilja að utan­að­kom­andi aðilar verði fengnir til að meta virði Ögur­víkur ehf. áður en að gengið verði frá kaupum á félag­inu. Tilkynnt var um það eftir lokun mark­aða á föstu­dag að HB Grandi hefði gert sam­komu­lag um að kaupa Ögurvík á 12,3 millj­arða króna.

[links]Það sem er sér­stakt við kaupin er að núver­andi eig­andi Ögur­víkur, Brim hf., er líka stærsti eig­andi HB Granda með 35 pró­sent eign­ar­hlut. Guð­mundur Krist­jáns­son, eig­andi Brim, sett­ist auk þess nýverið í for­stjóra­stól HB Granda. Með sam­komu­lag­inu er væri HB Grandi því að kaupa eign af stærsta eig­anda sínum, sem er í eigu for­stjóra félags­ins.

Í gær var send út til­kynn­ing til Kaup­hallar þar sem greint var frá því að boðað hafi verið til stjórn­ar­fundar í HB Granda næst­kom­andi fimmtu­dag þar sem fjallað verður um sam­komu­lagið, en stjórn og hlut­hafa­fundur félags­ins þurfa að sam­þykkja það áður en hægt verður að ganga frá kaup­unum.

Lífeyrissjóðir eiga stóran hlut í HB Granda

Stærstu eig­endur HB Granda, að Brim frá­töldu, eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna á 13,66 pró­sent hlut, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins á 9,94 pró­sent hlut, Gildi líf­eyr­is­sjóður á 8,62 pró­sent hlut og Birta líf­eyr­is­sjóður á 8,62 pró­sent hlut.

[adspot]Full­trúar ann­arra hlut­hafa sem Kjarninn hefur rætt við segja að eðli­legt sé að hin ætl­uðu kaup verði kynnt á hlut­hafa­fundi svo þeir geti tekið afstöðu til þeirra. Þeir leggja einnig mikla áherslu á að utan­að­kom­andi aðilar verði fengnir til að leggja mat á þau verð­mæti sem HB Grandi er að kaupa, í ljósi þess að verið sé að kaupa félag sem fyrir er í eigu for­stjóra HB Granda og stærsta eig­anda þess.

Við­skiptin eru einnig háð sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Til stendur að fjár­magna kaupin með eigin fé og láns­fjár­magni.

Hár margfaldari á eigið fé

Kjarninn greindi frá því á mánu­dag að sam­kvæmt árs­reikn­ingi Ögur­víkur fyrir árið 2017 þá hafi hagn­aður félags­ins numið 37 millj­ónum króna. Það hagn­að­ist hins vegar um 485 árið 2017. Félagið var með 747 millj­ónir í eigið fé í lok árs. Eignir námu 6,25 millj­örðum króna en skuldir 5,5 millj­örðum króna. Þar af voru lang­tíma­skuldir í erlendri mynt, 4,8 millj­arðar króna.

Verð­mið­inn sem til­kynnt var um til kaup­hallar er því 16,4 sinnum eigið fé félags­ins, miðað við stöð­una eins og hún var í lok árs í fyrra.

Til sam­an­burðar er verð­mið­inn á HB Granda nú 56,5 millj­arðar króna, en eigið fé félags­ins var um mitt þetta ár 250 millj­ónir evra, eða sem nemur um 32,5 millj­örðum króna. Mark­aðsvirðið er því 1,7 sinnum eigið fé félags­ins.

Gerir út einn frystitogara

Ögurvík er útgerð­ar­fé­lag í Reykja­vík sem gerir út frysti­togar­ann Vigra RE 71. Afla­heim­ildir hans á fisk­veiði­ár­inu sem hófst í byrjun mán­aðar eru 7.680 tonn af botn­fiski og 1.663 tonn af mak­ríl. Vigri RE er eitt kvóta­hæsta fiski­skip íslenska flot­ans.

Rúm tvö ár eru síðan að Brim keypti Ögurvík, en þá var kaup­verðið sagt trún­að­ar­mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

grandi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár