ASÍ: Jólakveðjur ríkisstjórnarinnar til vinnandi fólks nöturlegar

Mið­stjórn ASÍ skorar á fjár­mál­ráð­herra og rík­is­stjórn að hraða allri vinnu er lýtur að kröfum verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar í kom­andi kjara­við­ræðum og hvetur Bjarna Bene­dikts­son til að vinna að sátt í skatta­málum frekar en beita vinn­andi fólk hót­unum.

Jóla­kveðjur rík­is­stjórnar til vinn­andi fólks eru nöt­ur­legar og ekki til þess gerðar að skapa sátt á vinnu­mark­aði eða auð­velda gerð nýrra kjara­samn­inga. Þetta ályktar mið­stjórn ASÍ en frétta­til­kynn­ing þess efnis var send út í dag. 

[links]Bjarni Bene­dikts­­son fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra sagði í við­tali við Morg­un­blaðið, sem birt­ist í morgun, að áform rík­­is­­stjórn­­­ar­inn­ar um lækk­­un tekju­skatts yrði end­­ur­­met­in ef samið verði um óá­­byrg­ar launa­hækk­­an­ir í kom­andi kjara­­samn­ing­­um. Hann sagði að til þess að unnt yrði að lækka skatta þyrftu launa­hækk­anir að vera innan þess svig­rúms sem fyrir hendi sé. Hann sagði að tekjur rík­is­sjóðs gætu orðið minni en spáð var vegna óvissu í ferða­þjón­ustu og mögu­legs ­sam­drátt ­vegna óróa í flug­in­u.

„Við þurfum að fara að snúa umræð­unni á Íslandi upp í það fyrir hvaða launa­hækk­unum er svig­rúm í hag­kerf­inu. Ef launa­hækk­anir eru langt umfram það svig­rúm sem er sann­ar­lega til staðar í hag­kerf­inu fer að vera mikið vafa­mál hvort stjórn­völd gera rétt í því að fylgja eftir áformum um ­lækk­an­ir á tekju­skatti ein­stak­linga,“ sagði Bjarni í við­tal­inu.

Í ályktun mið­stjórnar ASÍ kemur fram að hún for­dæmi að fjár­mála­ráð­herra velji að beita hót­unum í stað lausna ef umsamdar kjara­bætur verka­fólks verði honum ekki að skapi.

„Mið­stjórn ASÍ bendir á að stjórn­völd séu því miður lítið að gera til að létta róð­ur­inn í kjara­samn­inga­við­ræð­unum sem nú standa yfir. Tillögur í skatta- og hús­næð­is­málum hafa enn ekki komið fram, en brýn þörf er á rót­tækum til­lögum sem raun­veru­lega skipta sköpum fyrir almenn­ing. Því miður er það svo að for­gangs­röðun stjórn­valda felst í lækkun veiði­gjalda á útgerð­ina, lög­fest­ingu síð­asta dóm kjara­ráðs sem veitti kjörnum full­trúum ríf­legar launa­hækk­anir ásamt því að veita fjár­mála­fyr­ir­tækjum ríf­legar skatta­lækk­anir,“ segir í álykt­un­inni.

Mið­stjórn ASÍ skorar jafn­framt á fjár­mál­ráð­herra og rík­is­stjórn að hraða allri vinnu sem lýtur að kröfum verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar í kom­andi kjara­við­ræðum og hvetur Bjarna til að vinna að lausnum og sátt í skatta­málum frekar en beita vinn­andi fólk hót­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár