Bjarni: Óskynsamlegt að lækka skatta ef kjarasamningar fara úr böndunum

Rík­is­stjórnin hefur boðað skatta­lækk­an­ir í þágu þeirra sem eru í neðra skatt­þrep­inu, lægri og milli­tekju­hóp­un­um. Bjarni Bene­dikts­son segir að óskyn­sam­legt sé að fylgja því eft­ir ef kom­andi kjara­samn­ing­ar fari úr bönd­un­um.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, seg­ir að áform rík­is­stjórn­ar­inn­ar um lækk­un tekju­skatts verði end­ur­met­in ef samið verði um óá­byrg­ar launa­hækk­an­ir í kom­andi kjara­samn­ing­um. Bjarni segir í við­tali við Morg­un­blaðið í dag að til þess að unnt verði að lækka skatta þurfi launa­hækk­anir að vera innan þess svig­rúms sem er fyrir hendi. Hann segir að tekjur rík­is­sjóðs gætu orðið minni en spáð var vegna óvissu í ferða­þjón­ustu og mögu­legs sam­drátt vegna óróa í flug­inu.

„Við þurfum að fara að snúa umræð­unni á Íslandi upp í það fyrir hvaða launa­hækk­unum er svig­rúm í hag­kerf­inu. Ef launa­hækk­anir eru langt umfram það svig­rúm sem er sann­ar­lega til staðar í hag­kerf­inu fer að vera mikið vafa­mál hvort stjórn­völd gera rétt í því að fylgja eftir áformum um lækk­anir á tekju­skatti ein­stak­linga,“ segir Bjarni í við­tal­inu.

Skattalækkanirnar hugsaðar fyrir lægri tekjuhópa

Bjarni segir að skatta­lækk­an­irnar hafi verið boð­aðar í þágu þeirra sem eru neðra skatt­þrep­inu en að óskyn­sam­legt væri að fylgja því eftir að ef kjara­samn­ingar fari úr bönd­unum. „Við höf­um boðað skatta­lækk­an­ir í þágu þeirra sem eru í neðra þrep­inu, lægri og milli­tekju­hóp­un­um, en það er óskyn­sam­legt að fylgja því eft­ir ef kjara­samn­ing­ar fara úr bönd­un­um og menn eru að taka út meira en inni­stæða er fyr­ir. Þá þarf að huga mjög vel að tíma­setn­ingu slíkra aðgerða. Þær eru hugs­aðar til að greiða fyr­ir samn­ing­um en ekki til að greiða fyr­ir óá­byrg­um samn­ing­um,“ seg­ir Bjarni.

Verðbólguspáin versnað

Fjár­mála­ráð­herra segir það óskyn­sam­legt að lækka tekju­skatt ef Seðla­bank­inn væri á sama tíma að draga úr spennu í hag­kerf­inu með hækkun vaxta. Bjarni segir að það sé ákveðin launa- og verð­lags­for­sendur í fjár­laga­frum­varp­inu. Upp­haf­lega var gert ráð fyrir 0,5 pró­sent kaup­mátt­ar­aukn­ingu á næsta ári í frum­varp­inu, miðað við verð­bólgu­spá þegar fjár­lögin voru tekin saman. „Síðan versn­aði verð­bólgu­spáin og við sögðum að við það myndi svig­rúm til launa­hækk­ana í sjálfu sér ekk­ert breyt­ast, ekk­ert vaxa. Þannig að við breyttum ekki launa- og verð­lags­for­send­unum, “ segir Bjarni. Hann segir jafn­framt að ef samið verði um laun sem eru umfram for­sendur fjár­laga þá gæti mögu­lega þurft að láta reyna á vara­sjóð.

Þarf að taka með í reikninginn lífeyrisskyldbindingar ríkisins

Bjarni bendir á í við­tal­inu að taka þarf í reikn­ing hverjar afleið­ingar verða fyrir líf­eyr­is­skyld­bind­ingar rík­is­ins ef samn­ingar þró­ast með til­teknum hætti. „Við erum búin að gefa okkur ákveðnar for­sendur og höfum eitt­hvert svig­rúm í vara­sjóðnum, að því gefnu að hann verði ekki not­aður í annað ófyr­ir­séð og óvænt.“ Bjarni segir að ef honum hefur ekki verið ráð­stafað í annað kann að vera að rík­is­sjóður hafi ein­hvers konar stuð­púða í vara­sjóðnum en að ekki sé hægt að segja til um það á þess­ari stundu.

Með vara­sjóði vísar Bjarni til almenns vara­sjóðs í fjár­lögum sem er ætlað að mæta ófyr­ir­séðum, óvæntum og óum­flýj­an­legum útgjöldum. „Sögulega séð höfum við ekki gefið því nægi­legan gaum hvaða áhrif launa­breyt­ingar hjá opin­berum starfs­mönnum hafa haft á eft­ir­launa­skuld­bind­ingar rík­is­ins. Það hefur í ein­staka til­vikum hlaupið á millj­örðum, eða jafn­vel millj­arða­tugum, sem eft­ir­launa­skuld­bind­ing­arnar vaxa án þess að nokkur sé að hafa áhyggjur af því,“ segir Bjarni að lokum í við­tal­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár