Ritstjóri Morgunblaðsins kallar RÚV dótturfélag Samfylkingar og VG

Rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins segir sjálf­sagt að RÚV verði rann­sakað fyrir fram­göngu sína „þegar reynt var að bylta land­inu með valdi.“ Hann kallar rík­is­fjöl­mið­il­inn áróð­urs­deild.

Leið­ara­höf­undur Morg­un­blaðs­ins segir Rík­is­út­varpið (RÚV) sýna af sér val­kvætt sið­ferð­is­mat þegar hneyksl­is­mál koma upp. Það ráði úrslitum í mati fjöl­mið­ils­ins „hvar póli­tíski merki­mið­inn liggur.“

Í leið­ara blaðs­ins í dag, sem ber öll merki þess að Davíð Oddsson, annar rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, skrifi hann, er full­yrt að RÚV líti í raun á sig „sem dótt­ur­fé­lag Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna (eða öfugt) og hefur lengi gert svo frá­leitt er.“ Þar segir einnig að fram­ganga RÚV „þegar reynt var að bylta land­inu með valdi í kjöl­far banka­falls­ins hefur aldrei verið rann­sökuð þótt sjálf­sagt væri[...]Mark­miðið var að koma Sam­fylk­ingu og Vinstri grænum til valda og stuðla að ofsóknum gagn­vart þeim sem þóttu standa í vegi þess. Eftir að slík stjórn var mynduð breytt­ist þessi örygg­is­stofnun í feimn­is­lausa áróð­urs­deild fyrir þá rík­is­stjórn. Frægast var það í bar­átt­unni um Icesave.“

RÚV er ítrekað skot­mark gagn­rýni í rit­stjórn­ar­skrifum Morg­un­blaðs­ins, hvort sem um er að ræða leið­ara, Stak­steina eða Reykja­vík­ur­bréf. Rit­stjórar blaðs­ins hafa árum saman ásakað rík­is­mið­il­inn um að ganga erinda miðju- og vinstri­flokka og taka þátt í póli­tískum sam­særum gegn stjórn­mála­mönnum sem eru rit­stjór­unum þókn­an­legri. Ástæða leið­ara­skrif­ana í dag er hið svo­kall­aða Klaust­ur­mál. Höfundur kemur að þeirri nið­ur­stöðu að „í síð­ustu lotu hneyksl­is­mála kemst Rík­is­út­varpið að sömu nið­ur­stöðu og síam­st­ví­bur­inn, Sam­fylk­ingin: Vemmi­legt og við­ur­styggi­legt fjas ölv­aðra er verra mál en fjasið í verki.“ Í kjöl­farið er full­yrt að Sam­fylk­ingin hafi sett á fót þögg­un­ar­deild til að koma í veg fyrir að kyn­ferð­is­brota­mál kom­ist upp og er þar vísað í svo­kall­aða trún­að­ar­nefnd flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár